Calvin Harris gerir lag um svikula kærustu Birgir Örn Steinarsson skrifar 7. júlí 2016 10:50
Hiddleswift sirkúsinn er enn opinn. Nú hefur Calvin Harris hljóðritað lag sem fjallar um svikula kærustu og það er hlaðið tilvitnunum í samband hans við Taylor Swift. Lagið heitir Ole og textinn er skrifaður út frá sjónarhorni Tom Hiddleton. Ef eitthvað er að marka textann þá virðist vera að Harris trúi því að Taylor og leikarinn breski hafi verið byrjuð að hittast áður en hún sleit sambandinu við popparann. Taylor Swift byrjaði að vera með breska leikaranum aðeins nokkrum dögum eftir að hún sagði Calvin Harris upp í gegnum símann. Hann var þá að jafna sig eftir bílslys.Mynd sem tekin var af parinu 28. maí síðastliðinn í New York.vísir/gettyLow Key/LokiSögupersónan í laginu segir til dæmis; „ég sé á netinu að þú ert byrjuð að vera góð stelpa, farin í ferðalög með kærastanum þínum. Reynir að sinna honum en heldur áfram að þykjast“. Seinna í textanum segir svo; „þú felur nafn mitt í símanum þínum svo þú getir hringt og sagt mér að þú sért í helvíti. Skilur hann eftir einan og bókar hótel.“ Til þess að kóróna allt leikur Harris sér með hljóðfræðina og nefnir persónu Tom Hiddleton úr Avengers, án þess þó að nefna hann. Orðið Loki kemur fyrir í orðaleik þar sem Harris skrifar á ensku; „Low Key you won‘t tell none of your friends about me.“ Söngvari lagsins er John Newman en þeir félagar skelltu sér til Mexíkó til þess að skjóta myndbandið.Svona landar maður ekki BondEn þá er ekki öll sagan sögð því Piers Morgan lét Tom Hiddleton heyra það í pistli sínum á Daily Mail. Þar skrifar hann opið bréf til leikarans sem hann fullyrðir að sé að keppast um að verða hinn næsti James Bond. Í greininni segist Piers vera mikill aðdáandi Tom‘s en að nú óttist hann um að leikarinn sé að eyðileggja feril sinn með öllum vitleysisganginum. Kornið sem hafi fyllt mælinn hafi verið þegar sást til hans á ströndinni í bol áletruðum „Ég (hjarta) TS“ og svipað gervitattú á upphandlegg hans. „Þegar maður leggur svona mikið á sig til þess að sýna ást sína á konu fyrir allan heiminn, hefur það yfirleitt öfug áhrif,“ skrifar Piers í pistlinum. „Við höfum séð svona áður með hjartaknúsara frá Hollywood að nafni Tom. Fyrir 11 árum síðan rústaði Tom Cruise ímynd sinni með fimm mínútna sturlun í þætti Oprah Winfrey.“ Seinna í greininni skrifar hann svo. „Tom, það er ekki svona sem þú nælir þér í Bond hlutverkið. Svona rústar þú möguleika þínum hraðar en 007 grillaði Oddjob í Goldfinger. Karlmönnum finnst þú hafa tapað glórunni og konum... finnst þú hafa tapað glórunni. Daniel Craig myndi fyrr skjóta sig í hausinn með skammbyssu en að láta sjá til sín í svona bol, með svona tattú! Nú verð ég bara að vona að þetta sé allt einhver leikur á fjölmiðla sem þið eruð að skapa.“
Tónlist Tengdar fréttir Er Hiddleswift bara allt í plati? Kenningar eru á lofti um að meint ástarsamband Taylor Swift og Tom Hiddleton sé í raun leikur á fjölmiðla sem tengist nýju tónlistarmyndbandi hennar. 4. júlí 2016 16:29 Skrautlegt þjóðhátíðarpartý Taylor Swift Það var öllu tjaldað til í sundlaugarpartýi Taylor sem var haldið á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. 5. júlí 2016 11:00 Samband Taylor Swift og Calvin Harris á enda Heimildarmenn Time Magazine segja að ofurparið sé ekki lengur saman. 1. júní 2016 23:51 Mest lesið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ Lífið Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Lífið Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Lífið Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Lífið Ofboðslega falleg berskjöldun Menning Flottasti garður landsins - taktu þátt! Lífið samstarf Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Lífið Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Fleiri fréttir Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlistarhátíðinni Lóu aflýst Eltir draumana og þarf að færa fórnir Brian Wilson látinn „Ég var ekki að búast við því að gráta svona“ Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sjá meira
Er Hiddleswift bara allt í plati? Kenningar eru á lofti um að meint ástarsamband Taylor Swift og Tom Hiddleton sé í raun leikur á fjölmiðla sem tengist nýju tónlistarmyndbandi hennar. 4. júlí 2016 16:29
Skrautlegt þjóðhátíðarpartý Taylor Swift Það var öllu tjaldað til í sundlaugarpartýi Taylor sem var haldið á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. 5. júlí 2016 11:00
Samband Taylor Swift og Calvin Harris á enda Heimildarmenn Time Magazine segja að ofurparið sé ekki lengur saman. 1. júní 2016 23:51
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög