Bugatti Galibier í kjölfar Chiron Finnur Thorlacius skrifar 24. maí 2016 10:50 Bugatti Galibier er undurfalleg smíði og í leiðinni fjögurra dyra ofurbíll.
Í mörg ár hafa bílaáhugamenn velt fyrir sér hvort Bugatti ætli eða ætli ekki að smíða Bugatti Galibier bílinn sem fyrirtækið kynnti fyrir nokkrum árum sem tilraunabíl. Nýjustu fréttir úr herbúðum Bugatti benda þó til þess að svo geti orðið. Bugatti einbeitir sér nú að smíði síns eina framleiðslubíls sem stendur, Bugatti Chiron, en það er 1.500 hestafla akstursskrímsli sem kemur í kjölfar Bugatti Veyron bílsins. Þeir hjá Bugatti eru nú að velta fyrir sér hverskonar bíll sé heppilegastur til smíði, en svo virðist sem Bugatti ætli bara að smíða einn bíl í einu og er það staðfest hjá forstjóra fyrirtækisins, Wolfgang Dürheimer. Margir myndu fagna smíði Galibier bílsins, enda fékk hann góða dóma fyrir útlit sitt er hann var kynntur sem tilraunabíll. Sumir hafa bent á að Bugatti gæti verið að íhuga smíði öflugs jeppa sem slá myndi við öflugum jeppum sem nú streyma frá lúxusbílaframleiðendunum og víst er að markaður virðist vera fyrir slíka bíla nú um stundir, ekki síst í ljósi mikillar eftirspurnar eftir Bentley Bentayga jeppans sem yfir 5.000 kaupendur hafa skrifað sig fyrir þrátt fyrir hátt verð hans. Þá hefur einnig verið leitt getum að því að Bugatti myndi smíðað Plug-In-Hybrid bíl sem ætti að rassskella bíla eins og Ferrari LaFerrari, McLaren P1 og Porsche 918 Spyder. Hvað sem verður er víst að næsti bíll Bugatti á eftir Chiron verður athygliverður bíll. Bugatti er í eigu Volkswagen bílasamstæðunnar.
Mest lesið Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Innlent Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Erlent Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent