Hljómsveitin Beebee and the bluebirds sendi nýlega frá sér nýtt lag sem heitir Out of the dark en sveitin gaf út fyrstu breiðskífu sína árið 2014.
Hlusta má á nýja lagið hér á YouTube rás hljómsveitarinnar.
Að sögn Brynhildar Oddsdóttur, gítarleikara og söngvara sveitarinnar, var vinnuferli lagsins frekar stutt en hún samdi það að stærstum hluta kvöld eitt í janúar fyrr á árinu. „Stuttu síðar kláraði ég gítarriffið og textann og fór svo með lagið til strákanna í bandinu þar sem við æfðum það upp. Innblástur lagsins er sóttur til lífsins og fólksins í kringum mig. Það er líka þannig að fólk túlkar yfirleitt texta á sinn hátt eða aðlagar að reynslu sem það hefur sjálft gengið í gegnum,“ segir hún.
Beebee and the bluebirds hafa spilað á ýmsum tónlistarhátíðum og tónleikum hér á landi undanfarin ár auk þess sem hún hefur spilað víða erlendis undanfarið ár, meðal annars í Chicago og Boston í Bandaríkjunum og Edmonton í Kanada.
Á síðasta ári gaf sveitin út nýtt lag og myndband við lagið Easy.
„Við stefnum á plötuútgáfu í haust en það verður önnur plata okkar. Hún verður aðeins hrjúfari en sú fyrsta, sem bar heitið Burning Heart og kom út 2014. Síðan höldum við til Milwaukee í Bandaríkjunum í júlí þar sem við komum fram á stórri tónlistarhátíð sem heitir Summerfest auk þess sem við spilum á nokkrum minni tónleikum á sama svæði. Svo spilum við auðvitað á tónlistarhátíðum hér heima í sumar.“
Hlusta má á fyrstu plötu sveitarinnar, og fleiri lög, á Soundcloud síðu hennar.
Beebee and the bluebirds er líka á facebook og Instagram.
Nýtt lag frá Beebee and the bluebirds
