Nissan að taka yfir Mitsubishi Motors? Finnur Thorlacius skrifar 12. maí 2016 11:10 Verður Mitsubishi Motors hluti af Nissan innan tíðar?
Sú saga flýgur nú hátt að Nissan sé að kaupa ráðandi hlut í bílaframleiðslu Mitshubishi og sé að tryggja sér 30% eða 34% hlut fyrir um 230 milljarða króna. Þessar fréttir koma í kjölfar vandræða Mitsubishi Motors eftir að fyrirtækið viðurkenndi að hafa logið til um eyðslu bíla sinni frá árinu 1991. Forstjóri Mitshubishi Motors hefur sagt að þessi klípa sem fyrirtækið hefur komi sér í nú gæti riðið því að fullu og að bílaframleiðslu Mitsubishi verði hætt. Ef þessar fréttir af kaupum Nissan á þriðjungshlut í Mitsubishi eru réttar mun það væntanlega tryggja framtíð framleiðslu Mitsubishi bíla. Nissan og Mitsubishi eiga nú þegar í samstarfi og framleiða saman mjög smáa bíla sem seldir eru í Asíu. Aðallega hefur Mitsubishi framleitt slíka bíla fyrir Nissan. Af þeim bílgerðum sem Mitsubishi framleiddi fyrir Nissan og Mitsubishi hefur viðurkennt að vera með rangar eyðslutölur voru framleiddir 650.000 bílar. Hlutabréf í Mitsubishi Motors hafa fallið um helming síðan fréttirnar um svindl Mitsubishi voru viðurkenndar og hefur það opnað dyr fyrir yfirtöku annarra bílaframleiðenda. Því er Nissan væntanlega að gera ágæt kaup. Nissan getur með yfirtöku tryggt sér aðgang að 60% hlutdeild í smábílamarkaði Japans með yfirtöku og með því stækkað fyrirtækið, en það virðast flest bílafyrirtæki stefnt að síðustu ár. Nissan og Mitsubishi höfðu fyrir uppgötvun svindlsins haft uppi áform um samstarf um smíði rafmagnsbíla.
Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent