Toyota hættir framleiðslu FJ Cruiser Finnur Thorlacius skrifar 12. maí 2016 14:44 Toyota FJ Cruiser.
Síðustu 10 ár hefur Toyota framleitt FJ Cruiser jeppann en mun hætta alfarið framleiðslu hans í ágúst á þessu ári. Bíllinn seldist ágætlega á tímabili í Bandaríkjunum en þegar sala hans dalaði þar verulega var tekin ákvörðun um að draga hann af markaði þarlendis árið 2014. Hann hefur þó verið í boði á öðrum mörkuðum, meðal annars í Ástralíu og í Japan, þar sem hann er framleiddur. Allar götur frá komu hans árið 2006 hefur þessi bíll verið með 4,0 lítra V6 bensínvél, fimm gíra sjálfskiptingu og fjórhjóladrifi, en bíllinn var þó einnig í boði með drifi á einum öxli og sex gíra beinskiptingu og þannig útbúinn var hann ódýrari. Toyota FJ Cruiser er byggður á styttri útgáfu Land Cruiser Prado undirvagnsins og er 2.123 kílóa þungur bíll. Hurðir bílsins opnast öfugt, sem kallað hefur verið “suicide doors” uppá enska tungu. Hann er afar óvenjulegur útlits og með svokallað “retro”-útlit, sem er skírskotun í útlit eldri gerðir bíla og var slík framleiðsla ekki óalgeng fyrir um 10 árum síðan en hefur verið á hröðu undanhaldi.
Mest lesið Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Slegist með vopnum við skemmtistað Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Innlent Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Innlent