Klopp: Ég á alltof mikið af silfurverðlaunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2016 16:15 Jürgen Klopp, knattspyrnurstjóri Liverpool, var brosandi á blaðamannafundinum. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnurstjóri Liverpool, var jákvæður og skemmtilegur eins og hann á að sér á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fer fram í Basel í Sviss á morgun. Liverpool mætir þar spænska liðinu Sevilla og það er ekki bara Evróputitill í boði heldur einnig sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. „Heima í Þýskalandi á ég alltof mikið af silfurverðlaunum en það er þó betra en að eiga engar medalíur," sagði Jürgen Klopp. Klopp fékk sjö silfurverðlaun þegar hann var með Borussia Dortmund og hefur þegar náð í eitt silfur sem stjóri Liverpool en liðið tapaði í úrslitaleik deildabikarsins á dögunum. „Því lengur sem þú vinnur ekkert því meira reynir þú og þá ættu að vera meiri líkur á því að þú vinnir. Ég trúi því að minnsta kosti," sagði Klopp og hann er ánægður með leikmennina sína. „Þessir strákar hafa skilað sínu verki fullkomlega. Ég er mjög ánægður með að fá að vera hluti af þessu," sagði Klopp. „Þetta verður opinn leikur en ég segi alltaf að opnir leikir eru leikir sem við getum unnið," sagði Klopp. „Það voru einhverjir að efast um gæði leikmannahópsins þegar ég kom hingað en ég ánægður með að þeir fái nú tækifæri til að sýna hversu góðir þeir eru," sagði Klopp. Liverpool-liðið hefur slegið út Manchester United, Borussia Dortmund og Villarreal út á leiðinni í úrslitaleikinn. „Allt sem við höfum gert þann tíma sem við höfum verið saman hefur undirbúið okkur fyrir leik sem þennan. Ég finn ekki fyrir pressu ég sé tækifæri," sagði Klopp. Liverpool endaði í 8. sæti í ensku úrvalsdeildinni, datt út í 32 liða úrslitum enska bikarsins og komst í úrslitaleik enska deildabikarsins. Leikur Liverpool og Sevilla hefst klukkan 18.45 á morgun og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira