Leikstjóri myndbandsins var Hannes Þór Arason en það var allt tekið upp á 8mm filmuvél í Vestmannaeyjum.
Saga myndbandsins er um hversdagslegt líf í Vestmannaeyjum, þar sem Unnar (Júníus Meyvant) ólst upp, og það vill svo til að það er pabbahelgi. Ungi strákurinn í myndbandinu er einmitt sonur Unnars og saxófónleikarinn er faðir hans.
Júníus Meyvant lauk nýverið við upptökur á sinni fyrstu hljómplötu sem hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið. Platan ber heitið „Floating Harmonies“ og kemur hún út 8. Júlí nk. Platan kemur út um allan heim en verður fáanleg í eiginlegum eintökum í Evrópu fyrst um sinn. Record Records gefur út.
Í september fer Júníus Meyvant í tónleikaferð um Evrópu ásamt hljómsveit sinni og verður spilað á eftirfarandi stöðum:
Sep 2 Berlin, DE Privatclub
Sep 3 Gdansk, PO Soundrive Fest
Sep 4 Dresden, DE Sound Of Bronkow Festival
Sep 5 Prague, CZ La Loca
Sep 6 Vienna, AT Chelsea
Sep 7 Munich, DE Ampere
Sep 9 Hamburg, DE Nochtspeicher
Sep 10 Copenhagen, DK Jazzhouse
Sep 12 Aarhus, DK Radar
Sep 14 Groningen, NL Vera
Sep 15 Amsterdam, NL Bitterzoet
Sep 16 London, UK Bush Hall
Sep 17 Bristol, UK Louisiana
Sep 18 Glasgow, UK Broadcast
Sep 19 Manchester, UK Gullivers
Sep 21 Paris, FR La Boule Noir
Sep 22 Brussels, BE Live Europe
Sep 23 Zurich, CH Bogen F