Júníus var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti söngvari ársins í fyrra og hlaut einnig tilnefningu fyrir besta lagið. Júníus var einnig iðinn við tónleikahald á Íslandi sem og á erlendri grundu í fyrra og mun ekki slá slöku við í ár.
Þröngskífa Júníusar er samnefnd og innheldur tvö af vinsælli lögum Júníusar sem allmargir landsmenn þekkja. Skífunni var vel tekið tekið af hlustendum útvarpsstöðva hér á landi og var einnig tekið vel í hana af útvarpsstöðvum á borð við KEXP, Radio X, BBC Radio London og Amazing Radio.
Fyrsta breiðskífa Júníusar kemur út 8. júlí næstkomandi og hefur hún hlotið nafnið Floating Harmonies. Út er komin smáskífan Neon Experience sem hefur notið töluverðra vinsælda.
Júníus hefur ásamt fylgdarliði sínu lokið við skipulagningu á tónleikaferð um Evrópu í september næstkomandi. Alls eru tónleikarnir sem tilkynntir eru í dag átján talsins, víðsvegar í Evrópu.
Í dag kom einnig út lifandi myndband við lagið Neon Experience sem tekið var upp í Stúdíó Sýrlandi á síðasta ári. Tónlistarmyndband er væntanlegt við lagið síðar í þessum mánuði en þetta lifandi myndband má sjá hér að neðan.
Hér eru dagsetningarnar fyrir tónleikaferð Júníusar.
Hvar Tónleikastaður
Sep 2 Berlin, DE Privatclub
Sep 3 Gdansk, PO Soundrive Fest
Sep 4 Dresden, DE Sound Of Bronkow Festival
Sep 5 Prague, CZ La Loca
Sep 6 Vienna, AT Chelsea
Sep 7 Munich, DE Ampere
Sep 9 Hamburg, DE Nochtspeicher
Sep 10 Copenhagen, DK Jazzhouse
Sep 12 Aarhus, DK Radar
Sep 14 Groningen, NL Vera
Sep 15 Amsterdam, NL Bitterzoet
Sep 16 London, UK Bush Hall
Sep 17 Bristol, UK Louisiana
Sep 18 Glasgow, UK Broadcast
Sep 19 Manchester, UK Gullivers
Sep 21 Paris, FR La Boule Noir
Sep 22 Brussels, BE Live Europe
Sep 23 Zurich, CH Bogen F