Ef litið er á síðustu útgáfur þessara tónlistamanna er auðvelt að greina ákveðið mynstur: Kanye West fór á Twitter og reitti af sér yfirlýsingarnar rétt áður en hann gaf út ókláruðu plötuna The Life of Pablo og einungis á tónlistarþjónustunni Tidal, Beyoncé gefur tvær síðustu plötur sínar út óvænt og þeim fylgja myndbandsverk þar sem hún er pólitísk og ýjar að vandamálum í sambandi við eiginmann sinn og Drake býr til „memes“, brandara á internetinu sem allir geta tekið þátt í. Þau kynna öll plöturnar með „viral“ aðgerðum sem virkja fólk á samfélagsmiðlum til að taka þátt í markaðssetningunni án þess kannski að vera fullkomlega meðvitað um það.

Drake sjálfur hefur sett svipaðar myndir inn á Instagram-reikning sinn en þar er lítil útgáfa af honum sitjandi með á myndum af þeim tónlistarmönnum sem koma fram í gestahlutverkum á plötunni. Sérstök vefsíða býður fólki svo upp á að búa til sínar eigin útgáfur af umslaginu og önnur inniheldur leik þar sem notendur geta kastað Drake fram af turninum.
Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem Drake hefur orðið að „meme“. Líklega varð hann það fyrst þegar Jimmy Brooks, karakterinn sem hann lék í Degrassi-þáttunum, var notaður í brandarann „Wheelchair Drake“ um 2010 – en persónan var um skeið í hjólastól í þáttunum. Þessi brandari snerist aðallega um að myndir af Drake í hjólastól voru notaðar ásamt textum úr lögunum hans til að segja hjólastólabrandara. Síðan komu „type of“ brandararnir, þar sem var grínast með hvað Drake er af mörgum talinn mjúkur, frasinn YOLO sem Drake gerði vinsælan í laginu The Motto, Photoshop-brjálæði eftir að myndbandið No New Friends kom út, fólk að gera eigin útgáfur af plötuumslaginu af If You’re Reading This It’s Too Late, frægt fólk að herma eftir Hotline Bling myndbandinu og síðan deilur Drakes við rapparann Meek Mill sem vöktu athygli um allan heim.
Drake er svo sem ekki einsdæmi þegar kemur að því að verða skotspónn internetsins en fáir hafa verið eins meðvitaðir um það og notað sér svo grínið til eigin markaðssetningar eins og hann. Meira að segja lagatitlarnir hans virðast hannaðir til að vera notaðir undir myndum á samfélagsmiðlum.