Hljómsveitin hefur undanfarið haft þann vana á að gefa alltaf út textamyndband við lögin og fengið þekkta Íslendinga í verkefnin. Að þessu sinni má leikkonuna Guðrúnu Gísladóttur túlka lagið á einstakan hátt.
Myndbandið er unnið í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Tjarnargatan og má sjá hér að neðan. Of Monsters and Men kemur fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum í sumar.