Sorgarsaga Aleppo: Ein fegursta borg Miðausturlanda sundursprengd og skugginn af sjálfri sér Atli ísleifsson skrifar 1. mars 2016 11:09 Íbúar Aleppo virða fyrir sér skemmdir sem unnar voru í loftárásum stjórnarhersins í Shaar-hverfinu í austurhluta Aleppo í mars á síðasta ári. Vísir/AFP
Borginni hefur verið lýst sem einni fegustu borg Miðausturlanda. Baráttan um Aleppo milli sveita sýrlenska stjórnarhersins og uppreisnarhópa hefur hins vegar leitt til þess að fornar og fagrar byggingar í þessari stærstu borg landsins hafa verið sprengdar í sundur og er borgin nú skugginn af sjálfri sér. Þar sem áður voru líflegir markaðir og fjölmenni á götum mega sprengjuárásir nú heita daglegt brauð og víða má sjá leyniskyttur á húsþökum. Loftárásir Rússlandshers síðustu mánuði hafa meðal annars beinst að Aleppo þar sem uppreisnarhópar hafa um árabil ráðið yfir heilu hverfunum, en stjórnarher Sýrlands öðrum.Stærsta borg SýrlandsAleppo er stærsta borg Sýrlands og hefur verið helsta iðnaðarborg og fjármálamiðstöð landsins. Borgin hefur verið þekkt fyrir framleiðslu sína á vefnaðarvörum, lyfjum og hinni heimsfrægu Aleppo-sápu sem búin er til úr olífuolíu. Eftir að uppreisnin gegn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta hófst árið 2011 slapp borgin að mestu við þau fjölmennu mótmæli og þær mannskæðu árásir sem einkenndu ástandið í öðrum borgum og bæjum landsins.Mynd af Aleppo árið 2010, áður en borgarstyrjöldin braust út.Vísir/GettyÍ frétt BBC kemur fram þetta hafi breyst í júlí 2012 þegar uppreisnarhópar létu til skarar skríða og sóttu hart að hersveitum stjórnarhersins og náðu stjórn á stórum hluta norðurhluta landsins. Uppresinarmenn ráða nú yfir stórum hverfum í austurhluta Aleppo og sveitir hliðhollar Bashar al-Assad Sýrlandsforseta yfir vesturhlutanum. Yfirráð yfir sumum hlutum borgarinnar skipta um hendur nær daglega.Baráttan um Aleppo kann að marka þáttaskilStjórnarherinn hefur frá lokum 2013 hert loftárásir á þá hluta borgarinnar sem uppreisnarmenn ráða yfir og hafa þúsundir manna hafa látið lífið. Stór hluti þeirra eru óbreyttir borgarar. Sýrlandsher hefur síðustu mánuðina notið stuðnings Rússlandshers og hafa uppreisnarmenn átt í vök að verjast að undanförnu. Margir vilja meina að ef stjórnarherinn nær Aleppo aftur á sitt vald kunni það að marka þáttaskil í sýrlenska borgarastríðinu.Borgarvirkið í Aleppo árið 2012.Vísir/AFPForn borgAleppo, sem gengur undir nafninu „Halab“ á arabísku, hefur verið með eina lengstu samfelldu búsetuna í mannkynssögunni. Minnst er á borgina í egypskum textum frá tuttugustu öld fyrir Krist. Leifar af hofi frá þriðja árþúsundi fyrir Krist hafa fundist í kringum hið fræga borgarvirki Aleppo frá 360 fyrir Krist sem gnæfir enn yfir borgina. Aleppo blómstraði á sautjándu öldu fyrir Krist þar sem borgin var stjórnsýsluleg og efnahafsleg miðstöð konungsríkisins Jamhad þar til það féll í hendur Híttíta. Borgin varð síðan mikilvæg miðstöð fyrir verslunarmenn sem fóru á Silkiveginum svokallaða milli ríkja í kringum Miðjarðarhaf og ríkja í austri. Síðar varð borgin hluti Rómarveldis þar sem hún blómstraði á ný.Hermenn eru nú á hverju strái í kringum borgarvirkið í Aleppo.Vísir/AFPÁ sjöundu öld eftir Krist náðu múslímskir arabar þar yfirráðum og í upphafi þeirrar áttundu var Moskan mikla í borginni reist. Á tíundu öld varð Aleppo höfuðborg Hamdanid-veldisins en varð á næstu árum mikið bitbein ólíkra velda í heimshlutanum. Á þrettándu öld náðu Mongólar borginni og nokkru síðar brust út skæð plága sem varð stórum hluta íbúanna að aldurtila. Á sextándu öld varð borgin svo hluti Tyrkjaveldis og varð helsta miðstöð verslunar milli austurs og vesturs.Miklar skemmdir hafa verið unnar á Moskunni miklu. Mynd frá 2014.Vísir/AFPGríðarleg fjölgun íbúa eftir seinna stríðNokkuð dró úr mikilvægi borgarinnar á átjándu öld og enn frekar þegar Bretar og Frakkar skiptu Sýrlandi sem leiddi til að samband borgarinnar við suðurhluta Tyrklands og norðurhluta Írak var gert erfiðara. Ástandið versnaði enn frekar eftir að hafnarborgin Alexandretta féll í hendur Tyrkja árið 1939. Eftir að Sýrland lýsti yfir sjálfstæði að lokinni seinni heimsstyrjöldinni varð borgin mesta iðnaðarborg landsins á ný þar sem íbúafjöldinn fór úr 300 þúsund í 2,3 milljónir árið 2005. Til samanburðar eru íbúar sýrlensku höfuðborgarinnar Damaskus um 1,7 milljónir. Íbúarnir eru að stærstum hluta súnnímúslímar og flestir arabar þó að einnig séu þar Kúrdar og Túrkómenar. Þá búa flestir kristnir íbúar Sýrlands í Aleppo.Markaðurinn (souk) í miðborg Aleppo árið 2012.Vísir/AFPHernaðarlega mikilvægBBC segir frá því að þegar mótmæli brutust út í landinu í mars 2011 gerðu sýrlensk yfirvöld allt sem í þeirra valdi stóð til að tryggja að þau breiddust ekki út til Aleppo. Hótanir yfirvalda gerðu það að verkum að mótmælin einskorðuðust í upphafi við úthverfi borgarinnar og svæði í kringum háskólann. Í febrúar 2012 voru hins vegar tvær sprengjuárásir gerðar á starfstöðvar lögreglu og hersins í borginni og féllu í þeim 28 manns. Þá var ekki aftur snúið og hófust bardagar milli stjórnarhermanna og uppreisnarmanna í nágrenni borgarinnar.Mikill eldur braust út á markaðnum árið 2012 eftir sprengjuárásir í nágrenninu.Vísir/AFPOrrustan um Aleppo hófst svo fyrir alvöru um miðjan júlí 2012 þar sem uppreisnarhópar náðu fljótlega borgarhlutum í norðaustri, suðri og vestri á sitt vald. Undir lok mánaðarins náðu átökin einnig að gamla bænum sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Mikill eldur eyðilagði helsta markað Aleppoborgar í september 2012 og í apríl 2013 var bænaturn Moskunnar miklu frá elleftu öld sprengdur.Borgarvirkið í Aleppo.Vísir/GettyUppreisnarmenn eiga í vök að verjastAð sögn BBC hafa uppreisnarmenn átt í erfiðleikum með að komast yfir þau þungavopn sem þarf til til að sigra stjórnarherinn. Sýrlandsher hefur þó þurft að leggja mikinn mannafla í að verja sjálfa höfuðborgina Damaskus eftir að uppreisnarhópar hófu þar sókn í júlí 2012. Stjórnarherinn hefur þó sótt hart að uppreisnarhópum í Aleppo með aðstoð Rússa að undanförnu. Rússar hafa sagst einungis beina loftárásum sínum að uppreisnarhópum íslamista – ISIS og fleiri – en Vesturveldin hafa sakað þá um að beina einnig árásum sínum að öðrum uppreisnarhópum og andstæðingum Assad forseta. Sýrlandsher hefur síðustu vikurnar náð nokkrum bæjum norður af Aleppo á sitt vald og vinna nú markvisst að því að ná að sitja um þau svæði sem uppreisnarmenn ráða yfir og loka birgðaleiðum. Mannréttindasamtökin Amnesty hafa sakað deiluaðila – jafnt stjórnarherinn og uppreisnarhópa – um að hafa gerst seka um stríðsglæpi. Segja samtökin líf íbúa borgarinnar verða sífellt óbærilegra, enda hafa mörg hundruð þúsund íbúar borgarinnar tekið þá ákvörðun að yfirgefa heimili sín og lagst á flótta í von um betra líf.
Flóttamenn Fréttaskýringar Mið-Austurlönd Mest lesið Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Innlent Hefur ekki hugmynd um hve margir telji sig eiga bókun Innlent Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Erlent Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Innlent Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Innlent Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Innlent Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Erlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Fleiri fréttir Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Ekkert flugvallarverkfall á Spáni á morgun en kannski á mánudag Heuermann sagður ætla að játa Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Sjá meira