Rashford bætti 51 árs gamalt met George Best í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2016 12:00 Marcus Rashford og George Best. Vísir/Getty
Marcus Rashford sló óvænt í gegn í gær þegar hann skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik með aðalliði Manchester United. Marcus Rashford kom United í 3-1 með tveimur mörkum á tólf mínútna kafla í seinni hálfleik í 5-1 sigri enska liðsins á dönsku meisturunum í Midtjylland. Midtjylland vann fyrri leikinn 2-1 og var því í fínum málum þegar Marcus Rashford tók til sinna ráða á Old Trafford í gær. Marcus Rashford bætti með þessu 51 árs gamalt met United-goðsagnarinnar George Best sem hafði staðið frá því í október 1964. Rashford var 18 ára og 117 daga í gær og bætti hann met Best um 41 dag. George Best var "aðeins" 18 ára og 158 daga þegar hann skoraði fyrir Manchester United á móti sænska liðinu Djurgarden í gamla borgarbikar UEFA 27. október 1964. Best skoraði markið sitt á 86. mínútu og kom þá United-liðinu í 6-0 en áður höfðu þeir Denis Law (3 mörk) og Bobby Charlton (2 mörk) skorað fimm mörk saman. Marcus Rashford er ekki sá fyrsti sem skorar meira en eitt mark í fyrsta leik sínum með aðalliði Manchester United. Tvö nýleg dæmi eru mönnum eflaust í fersku minni. Wayne Rooney skoraði þrennu í sínum fyrsta leik sem var á móti Fenerbahce í Meistaradeildinni í september 2004 og James Wilson skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik 6. maí 2014 sem var á móti Hull í ensku úrvalsdeildinni. Annað dæmi er Paul Scholes sem skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik sem var á móti Port Vale í deildarbikarnum í september 1994. Bobby Charlton skoraði líka tvö mörk í sínum fyrsta leik með United en hann er markahæsti leikmaður Manchester United frá upphafi.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Tengdar fréttir Van Gaal: Rashford spilaði stórkostlega Hollendingurinn var ánægður með frumraun Marcus Rashford. 26. febrúar 2016 08:43 United áfram eftir að hafa lent undir gegn Midtjylland | Sjáðu mörkin Manchester United skoraði fimm mörk gegn danska liðinu í kvöld og komst áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildar UEFA. 25. febrúar 2016 21:45 Mest lesið Þegar Dagur féll á lyfjaprófi: „Var með magasár í hálft ár“ Handbolti Solskjær ekki lengur líklegastur Enski boltinn „Eftir síðasta mót sögðu þeir bara strax að þeir vildu fá Ísland“ Handbolti Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Enski boltinn Magnaður McTominay til bjargar eftir að Conte brjálaðist Fótbolti Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Enski boltinn Alfreð fagnaði aftur gegn Degi fyrir EM Handbolti „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Enski boltinn Uppgjörið: Frakkland - Ísland 31-29 | Jákvæð teikn þrátt fyrir tap Handbolti Miðvarðaæði Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Dagskráin í dag: Liverpool í bikarnum og síðasta lausa sætið í NFL Solskjær ekki lengur líklegastur Fletcher segir leikmenn Man. Utd viðkvæma Veik von Man. Utd um titil úr sögunni Loksins unnu Hamrarnir eftir framlengdan leik Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Bradley frá út tímabilið | Fer Liverpool á markaðinn? Viðsnúningur hjá Leeds sem fer áfram Miðvarðaæði Liverpool Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Nýr stjóri Chelsea fékk óskabyrjun Draumur Villa lifir en eru dagar Franks taldir? Draumaprinsinn Benoný sendi aðdáendum kveðju Semenyo skoraði eitt af tíu og Hákon hélt hreinu Newcastle áfram eftir bráðabana og mikla dramatík Varði öll þrjú vítin og Sunderland áfram Stoltur af litla bróður eftir sögulegt afrek Benoný tryggði sigurinn á ögurstundu Utandeildarlið henti meisturunum úr keppni Dyche æfur eftir tapið Utan vallar: Dauði knattspyrnustjórans Solskjær hittir forráðamenn Man. Utd Hollywood-endir þegar Forest féll úr bikarnum Tottenham fær brasilískan bakvörð Dómarar lyfjaprófaðir vegna kókaínneyslu Coote Saka skrifar undir nýjan langtímasamning við Arsenal Sjá meira
Van Gaal: Rashford spilaði stórkostlega Hollendingurinn var ánægður með frumraun Marcus Rashford. 26. febrúar 2016 08:43
United áfram eftir að hafa lent undir gegn Midtjylland | Sjáðu mörkin Manchester United skoraði fimm mörk gegn danska liðinu í kvöld og komst áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildar UEFA. 25. febrúar 2016 21:45