Aðalbjörn er sakaður um að hafa „illegally seizing control over and ownership of the company’s main asset, the trademark Sólstafir and the band’s business, and for hollowing the company out from the inside.“
Í tilkynningu Guðmundar kemur fram að málið hafi verið þingfest við héraðsdóm Reykjavíkur 12. þessa mánaðar.
Einn hængur er þar á, sem kann að flækja málið sem þó er flókið fyrir, að þarna virðist sem meðal annars sé barist um vörumerki hljómsveitarinnar sem hljómsveitin nappaði sjálf í upphafi síns ferils.
Halla Helgadóttir er framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvarinnar og henni kemur þetta mjög spánskt fyrir sjónir. „Þetta er sama nafn, sama leturgerðin og það fer ekkert á milli mála. Um hvaða eign eru þeir eiginlega að deila,“ segir Halla forviða.
Upphaflega lógó listahátíðar
Halla hefur verið að ræða þetta sérkennilega mál við fyrrum félaga sína á auglýsingastofunni Grafít, hvar hún var eigandi. Forsaga málsins er sem sagt sú að árið 1995 barst verkefni þar inná borð frá menntamálaráðuneytinu, hvar Hanna Birna Kristjánsdóttir var helsti tengiliður; þá um að hanna útlit á norrænni listahátíð. Ólafur G. Einarsson þá ráðherra opnaði hátíðina 11. febrúar 1995 og stóð hún til 25. mars. Halla segir að Grafít hafi hannað útlit hátíðarinnar, þar með talið lógó eða vörumerki, en hátíðin hlaut nafnið Sólstafir.
„Sko, maður tekur þessu nú ekkert alvarlega en Magnús Arason, grafískur hönnuður, vann þetta lógó á Grafít árið 1995.“

Ljósritað og sjúskað í tímans rás
Halla, og aðrir sérfræðingar á sviði grafískrar hönnunar sem Vísir hefur borið málið undir, segja ekki fara á milli mála að þarna er um nákvæmlega sama merkið að ræða. Leturgerðin og uppsetningin er alveg sú sama, til dæmis á fyrstu plötu hljómsveitarinnar, en svo hafi þetta verið ljósritað og sjúskað og grófara í tímans rás. „Þegar þetta var hannað var tölvuvæðingin ekki orðin eins öflug og nú er,“ segir Halla en hana minnir að letrið hafi á sínum tíma verið fengið úr leturgerðarbók.
Þó þetta sé ekki mál sem Halla lítur alvarlegum augum, og sé kannski skondið öðrum þræði þá varðar þetta umfangsmikla hagsmuni sem snúa að hönnun og höfundarrétti. Sem vert er að vekja fólk til vitundar um.