Herra Snjall sér um tæknimálin á heimilinu 28. janúar 2016 11:30 Sverrir Birgir Sverrisson og Kjartan Þór Þórisson, eigendur fyrirtækisins Herra Snjall. Herra Snjall er með netfangið herrasnjall@herrasnjall.is.
KYNNING - Herra Snjall er nýtt fyrirtæki sem veitir snögga og faglega uppsetningu og uppfærslu á sjónvarpi, tölvum, neti, heimabíói og Apple tv/Netflix og GPS. Þjónustan miðar að því að fólk geti notað nýjustu tækni af kunnáttu, enda eru ótrúlega margir möguleikar í boði sem nauðsynlegt er að læra á til að njóta snjalltækninngar. Þá finnur Herra Snjall leiðir til að lækka símreikninginn. Sverrir Birgir Sverrisson og Kjartan Þór Þórisson eru eigendur og stofnendur fyrirtækisins en hjá þeim starfar hópur faglærðra þjónustuaðila. Sverrir segir að margir séu óvanir nútíma snjalltækjum og þekki ekki alla möguleika sem í þeim felast. „Við komum á staðinn og veitum persónulega þjónustu. Ef einhver tæknivandamál eru til staðar þá lögum við þau. Hvort sem þarf að tengja sjónvarpið, tengja það við heimabíó, myndlykil eða tölvu. Þá getum við einnig hengt sjónvarpið upp á vegginn ef beðið er um það og göngum frá öllum tengingum á faglegan hátt,“ útskýrir Sverrir.Fullt af möguleikum„Fyrirtækið hóf störf fyrir skömmu og þegar hefur komið í ljós að mikil eftirspurn er eftir þessari þjónustu. Það eru margir í vandræðum með ýmsar tengingar og einnig að læra hvernig tækin virka. Þessi nýju sjónvörp eru mjög ólík eldri gerðum og tæknivæddari. Svokallað Smart TV býður upp á ótrúlega mikla möguleika sem gaman er að kunna að nota. Þá eru ýmsir möguleikar með Netflix og síðan að nota sjónvarpið eins og tölvu. Ýmis öpp eru í boði sem fólk getur nýtt sér í sjónvarpinu,“ segir Sverrir og bætir við að þeir kenni fólki einnig að samtengja iPad við sjónvarpið og að nota snjallsímann sem fjarstýringu. „Við leggjum áherslu á að fólk kunni vel á tækin sín eftir að hafa fengið þjónustu okkar.“ Lækkaðu símreikninginn„Við lækkum símreikninginn og/eða netið fyrir þig, við finnum út hvaða fjarskiptafyrirtæki hentar þér og/eða fjölskyldu þinni best svo þú getur sparað allt að tugum þúsunda á ári. Við tökum ekkert gjald ef okkur tekst ekki að láta ykkur spara þannig að það er lítil áhætta fyrir neytandann að athuga málið. Við komum fljótt á staðinn, innan tveggja daga, en leggjum áherslu á að koma strax.“ Herra Snjall þjónustar allt höfuðborgarsvæðið. „Við skoðum öll mál sem koma til okkar.“ Hægt er að kynna sér starfsemina á herrasnjall.is og á Facebook-síðunni Herra Snjall. Einnig er hægt að ná í fyrirtækið í síma 779 4999.
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira