Gunnella segir að það hafi í raun verið nýtt fyrir sig að vinna inn í fyrir fram ákveðið þema og það hafi því kallað á aðeins aðra nálgun en áður.
„Ég fór að lesa goðafræðina og svipast eftir hinu myndræna. Það sem ég fann var Auðhumla og Óðinn með Hugin og Munin á öxlinni og líka Sleipnir. Í framhaldinu gerði ég þessar myndir fyrir Seattle og þær verða svo reyndar líka á sýningunni sem verður opnuð á laugardaginn.
Auðhumla er það sem ég hélt áfram að vinna með og það verða tvær Auðhumlumyndir á sýningunni í Galleríi Fold. Síðan ætlar Mjólkursamsalan að nota mynd á fernurnar sínar sem verða á markaði í október og allur ágóði af þeirri sölu rennur til tækjakaupa við Landspítalann, líklegast í tengslum við beinþynningu. Það verður gaman að því.“

Lulu Yee býr í New York en er fædd og uppalin í Kaliforníu þar sem hún nam við San Francisco Art Institute. Hún bjó á Íslandi um fjögurra ára skeið og heillaðist af íbúum landsins, náttúrunni og menningararfinum. Fígúrurnar hennar eru málaðar með leirmálningu og glerungum og margbrenndar sem skapar mörg lög af teikningu og lit. Lulu Yee hefur áður haldið sýningu á Íslandi en auk þess sýnt verk sín víða um heim og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.

Gunnella segir að þetta hafi í raun verið í fyrsta sinn sem hún hafi unnið inn í fyrirfram ákveðið þema og að það hafi vissulega verið skemmtileg reynsla.
„Það var gaman að vinna út frá þema eins og við gerðum fyrir þessa sýningu því þá er maður að koma aðeins út fyrir þann ramma sem maður er vanur. Þannig varð til ákveðinn nýr vinkill – nýjar hugmyndir og það er alltaf skemmtilegt.
Ég veit ekki hvort ég held áfram með goðafræðina. Held líkast til bara áfram með það sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina. Það verða margar myndir á sýningunni sem eru sóttar í ákveðnar bæjarmyndir, til að mynda frá Eyrarbakka og reyndar líka frá Vestmannaeyjum meðal annars. Inn í þessar bæjarmyndir set ég svo líf frá eldri tíma – gæði þær liðnu lífi ef svo má segja.“