Grillaðar kjúklingalundir í chili-sósu
Marinering
600 g kjúklingalundir
1 lime
2 msk. chili-sósa
sjávarsalt
Eftir grillun
3 msk. af chili-sósu
Sjávarsalt
Extra virgin ólífuolía
Setjið lundirnar í fat með sósunni og lime-safanum. Kryddið með salti og veltið lundunum vel upp úr öllu saman. Raðið lundunum upp á grillpinnana og setjið standinn inn í sjóðandi heitt grillið og grillið í um 8-10 mín. eða þar til lundirnar eru grillaðar í gegn.
Takið lundirnar af pinnunum og veltið þeim upp úr chili-sósunni og ólífuolíunni og kryddið þær með smá meira salti.
Kotasælusalat
1 dós kotasæla
4 stk. fínt skorinn vorlaukur
150 g fínt skorin kínahreðka
Börkur og safi af 1 stk. lime
1/3 kóríanderbréf
1 tsk. sambal oelek
Sjávarsalt
Setjið allt hráefnið saman í skál og smakkið það til með salti.
Meðlæti
1 haus iceberg-salat
1/3 kóríanderbréf
Takið salatblöðin utan af iceberg-salatinu og rífið kóríanderinn niður. Setjið allt hráefnið á borðið og raðið saman í taco eftir smekk.

Grilluð svínarif með BBQ-sósu og maís-salsa
Marinering fyrir rif
1 msk. fennelfræ
1 msk. stjörnuanís
1 msk. svartur pipar
½ msk. chiliflögur
1 msk. svartur pipar
4 msk. reykt paprikuduft
10 stk. kaffibaunir
6 stk. stjörnuanís
3 msk. gróft salt
8 msk. púðursykur
8 stk. svínarif
1 stk. Boli
Álpappír
Sjávarsalt
Setjið öll heilu kryddin og kaffibaunirnar saman í mortel og brjótið gróft niður. Setjið restina af kryddunum ásamt sykrinum og saltinu í skál með nýmalaða kryddinu og blandið öllu vel saman. Hjúpið rifin með kryddblöndunni báðum megin og setjið inn í ísskáp og látið standa í 14-16 tíma.
Kveikið á einum brennara á grillinu og hitið það upp í um 130-150 gráður. Pakkið rifjunum inn í álpappír og hellið ½ Bola yfir. Setjið rifin þeim megin sem slökkt er á grillinu og látið þau eldast þar í 3 klst.
Takið rifin úr álpappírnum og penslið þau með bbq-sósunni. Setjið þau síðan á heitt grillið og grillið í 3 mín. á hvorri hlið og penslið með bbq-sósunni á meðan. Takið rifin af grillinu og kryddið með salti.
Ristað maíssalat
4 stk. heill maís
1 stk. rauður chili (gróft skorinn)
½ rauðlaukur (fínt skorinn)
½ bréf kóríander
300 ml olífuolía eða kaldpressuð repjuolía
1 stk. lime, safinn og börkurinn
1 box kirsuberjatómatar (skornir í fernt)
½ bréf gróft skorinn kóríander
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Setjið heila maísinn á heitt grillið og grillið hann þar til hann er orðinn svartur að utan allan hringinn. Takið utan af maísnum og skerið maískornin utan af stilknum. Blandið öllum hráefnunum saman í skál og smakkið til með saltinu
BBQ-sósa
1 lítri tómatsósa
250 ml eplaedik
250 ml hlynsíróp
eplasafi 250 ml
250 ml sætt sinnep
150 ml chipotle-paste
2 stk. laukar (fínt skornir)
4 stk. hvítlauksrif
250 g púðursykur
250 g apríkósusulta
Sjávarsalt
Setjið allt hráefnið í pott og sjóðið við vægan hita í um 45 mín. eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Maukið sósuna með töfrasprota og smakkið hana til með salti.

Salatblaðs-taco með léttsýrðu grænmeti, kotasælusalati og grilluðum kjúklingalundum í hot-sauce
Létt sýrt grænmeti
safi úr 1 sítrónu
2 msk. agave-síróp
2 msk. ólífuolía
200 g gulrætur (skrældar)
1 stk. rauð paprika
4 sellerístilkar (skrældir með skrælara)
2 msk. eplaedik
Sjávarsalt
Setjið sítrónusafann, agave-sírópið og ólífuolíuna saman í skál og blandið vel saman með písk. Skerið allt grænmetið fínt niður og setjið út í skálina og smakkið til með salti og pipar.