Opel Astra hlýtur Gullna stýrið 2015 Finnur Thorlacius skrifar 11. nóvember 2015 13:54 Dr. Karl-Thomas Neumann tekur við verðlaununum í gær. Opel
Nýjasta stjarna Opel í millistærðarflokki, Opel Astra, hreppti eftirsóknarverðustu viðurkenningu bílaiðnaðarins í millistærðarflokki: “Golden Steering Wheel". Úrslitin voru tilkynnt í Berlín í gær. Viðurkenningin vekur mikla athygli í bílabranasanum, sérstaklega fyrir þá sök að nýjasta útgáfan af Opel Astra, sem um ræðir, kom á almennan markað í október síðastliðnum og stekkur því beint í fyrsta sætið. Sannarlega fáheyrt afrek. Þýsku miðlarnir Auto Bild og Bild am Sonntag standa saman að “Golden Steering Wheel” viðurkenningunni og er dómnefndin skipuð lesendum, sérfræðingum og atvinnumönnum í akstursíþróttum. Dr. Karl-Thomas Neumann og Tina Müller veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd Opel Group, “Við erum afar stolt af þessum verðlaunum. Þau falla í skaut magnaðasta Opel Astra bílsins sem framleiddur hefur verið og undirstrikar að metnaður okkar og markmið eru að skila árangri,” sagði Dr. Karl-Thomas Neumann. Tina Müller bætti við, “Nýja Astran okkar flýgur hátt. Við höfum nú þegar tekið við rúmlega 40 þúsund pöntunum og nú hlýtur bíllinn þessi mikilsvirtu verðlaun. Opel Astra er sannkölluð leiðarstjarna okkar inn í framtíðina.” Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri bílasviðs hjá Bílabúð Benna tekur í sama streng: “Þetta eru frábærar fréttir. Opel Astra verður örugglega vel tekið af Íslendingum. Við erum þegar farin að fá margar fyrirspurnir og bíðum nú eftir að fá hann til landsins. Hann verður kynntur rækilega á næstunni.”Sannarlega laglega hannaður bíll Astra og greinilega góður líka, ef marka má viðurkenninguna nú.
Mest lesið Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Innlent Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Innlent Golfklúbbum ber að hleypa öllum inn Innlent Bæjarfulltrúi sagst vilja taka hann „bak við húsvegg og skjóta“ Innlent Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Innlent Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum Innlent Kannast þú við Tommy? Innlent „Þetta er bara venjuleg taugaveiklun“ Innlent Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Erlent