Þrjú stig hjá AC Milan í Róm og þrír sigrar í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. nóvember 2015 21:30 Andrea Bertolacci fagnar marki sínu. vísir/getty
AC Milan vann sinn þriðja sigur í röð í Seríu A þegar liðið lagði Lazio í Róm í kvöld, 3-1. Eftir erfiða byrjun í deildinni virðast Mílanómenn vera komnir á skrið, en þeir eru ósigraðir í síðustu fjórum leikjum. Staðan var markalaus í hálfleik, en Andrea Bertolacci kom gestunum á bragðið á 53. mínútu, 1-0. Franski miðvörðurinn Phillipe Mexés tvöfaldaði forskot sinna manna á 79. mínútu, 2-0, með skallamarki sem var hans fyrsta snerting eftir að hann kom inn á sem varamaður. Aukaspyrna frá Milan barst inn á teiginn og ætlaði Federico Marchetti, markvörður Lazio, að ráðast á atburðarásina en missti af boltanum svo Mexes skallaði hann í autt netið. Kólumbíski markahrókurinn Carlos Bacca innsiglaði svo sigurinn með þriðja marki gestanna á 79. mínútu áður en hollenski framherjinn Ricardo Kishna klóraði í bakkann fyrir Lazio á 85. mínútu, 3-1. Með sigrinum komst AC Milan upp í sjötta sæti deildarinnar og upp fyrir Lazio sem er sæti neðar. Milan er með 19 stig en Lazio 18 stig. Fiorentina er efst í deildinni eftir 4-1 sigur á nýliðum Frosinone í dag. Liðið er með 24 stig líkt og Inter sem er í öðru sæti á markatölu.
Ítalski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Sjá meira