Haturberar Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 9. nóvember 2015 06:00 Drepa þessa múslima. Þetta er eins og kakkalakkar þegar þetta kemst inn í landið. Þau vilja ráða yfir öllum löndum sem þeir koma inn í. Drepa þetta í fæðingu. Enga fokking múslima kirkju á Íslandi.“ Svo hljóðar athugasemd við frétt Vísis frá 1. júní á þessu ári þar sem fjallað var um byggingu mosku í Sogamýri. Helgarblað Fréttablaðsins fjallaði um hatursglæpi, öfgahreyfingar og kynþáttahyggju þar sem meðal annars kom fram að frá og með 15. janúar næstkomandi verður til ný staða lögreglumanns í hatursglæpum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sá mun leitast við að kortleggja slíka starfsemi, mynda tengsl við slíka hópa og annað þess háttar. Ástæðan er uppgangur öfgahreyfinga í nágrannalöndum okkar. Í samtali við Fréttablaðið segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar, að það sem gerist í nágrannalöndum okkar geti allt eins gerst hér. Og ástandið þar er hreint ekki til fyrirmyndar í þessum efnum. Í síðasta mánuði var greint frá hrinu íkveikja í Svíþjóð þar sem eldur var lagður að húsum sem áttu að hýsa flóttamenn. Slíkar íkveikjur hafa haldið áfram. Á meðan Alda Hrönn vonar að starfsmaðurinn þurfi ekki að bregðast við slíkri glæpastarfsemi hér segir hún lögregluna verða að gera ráðstafanir og hafa tilbúna viðbragðsáætlun. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir kynþáttahyggju fyrirfinnast hér á landi og hafa gert í áraraðir. Nú verður hennar helst vart í andstöðu við múslima. Hann segir jarðveginn frjóan fyrir slíkar skoðanir og að þörf sé á að hafa augun opin nú þegar aukinn fjöldi flóttamanna leitar til Evrópu. „Það eru alltaf einhverjir sem geta gengið lengra heldur en allir hinir sem taka þátt í umræðunni gera sér nokkru sinni grein fyrir. Það er þess vegna sem þeir sem standa framarlega í umræðu bera ábyrgð á því hvernig þeir flytja mál sitt,“ segir Eiríkur. Málið er ósköp einfalt. Það er óumdeilt að hér á landi finnst fólk sem ber í brjósti óskiljanlegt hatur í garð þeirra samborgara sinna sem eru af öðru litarhafti, aðhyllast önnur trúarbrögð, laðast að sama kyni eða eru á einhvern annan hátt frábrugðnir hvítum meðalmanni í úthverfi sem mætir stundvíslega til messu á hverjum sunnudegi. Það þarf ekki nema nokkurra mínútna leit í skólpræsum kommentakerfa netsins til þess að finna ummerki um þessa einstaklinga þar sem þeir hafa – eins og hryðjuverkamennirnir sem þeir sjá flestir í hverju horni – laumast inn í umræðu, sprengt hana í loft upp með forheimsku sinni og fordómum og þannig eyðilagt alla vitiborna umræðu. Þegar og ef þessir vesalingar ákveða að orðum skuli fylgja efndir þarf að bregðast hart við, grípa til aðgerða og koma þessum greyjum í skilning um að slík hegðun verði ekki liðin á Íslandi á 21. öldinni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fanney Birna Jónsdóttir Mest lesið „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun