Fiat mun brátt markaðssetja mjög ódýran bíl sem heita mun Tipo og með því ætla að feta í fótspor Dacia sem aðeins býður mjög ódýra bíla. Dacia er rúmenskur bílaframleiðandi í eigu Renault.
Tipo verður einfaldur og praktískur bíll með fjórum hurðum og í upphafi aðeins í boði sem “sedan”-bíll, eða með venjulegu skotti, en samt nokkuð stóru. Fiat segir að þessi nýi ódýri bíll muni ekki eiga neinn eiginlegan keppinaut þar sem Dacia býður aðeins “subcompact”-bíla í formi Logan og Sandero, en Tipo sé í flokki “compact”-bíla og því með meira pláss fyrir farþega og flutningsrými.
Verð bílsins verður í kringum 12.000 evrur, eða 1,7 milljónir króna. Fiat hefur þegar sýnt Tipo á bílasýningu í Istanbul í maí og hefur einnig sýnt hann víða um Ítalíu og allsstaðar hefur hann fengið góða umsögn. Tipo fer í sölu í nóvember komandi, fyrst í Tyrklandi þar sem hann er smíðaður, en í kjölfarið í 40 löndum í Evrópu, Afríku og miðausturlöndum.
Fiat mun síðar kynna langbaksgerð þessa bíls, sem og stallbak og verður það meðal annars gert á bílasýningunni í Genf í mars á næsta ári. Fiat Tipo í “sedan”-útfærslu mun leysa af Fiat Linea og á hann að keppa við Peugeot 301 og Skoda Rapid í austurhluta Evrópu og Tyrklandi, en stallbaksgerðin mun leysa af Bravo bíl Fiat og keppa við VW Golf í vesturhluta Evrópu. Þá er eins gott að hann eigi eitthvað í mikil gæði Golf bílsins, eða hann verði miklu ódýrari.
Fiat býst við því að framleiða 700.000 Tipo bíla fram til ársins 2023, aðallega til útflutnings. Allt stefnir í að Fiat/Chrysler í Evrópu muni skila hagnaði í ár, í fyrsta skipti í langan tíma. Hagnaður Fiat/Chrysler var hinsvegar með ágætum á síðasta ári á heimsvísu, enda gengur sala Chrysler bíla vel í Bandaríkjunum, sem víðar.
