Frosinone vann fyrsta sigurinn í efstu deild | Úrslit kvöldsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 28. september 2015 21:05 Leikmenn Frosinone fagna hér marki. Vísir/Getty
Frosinone tókst að fylgja eftir góðu jafntefli gegn Juventus á útivelli um síðustu helgi með óvæntum 2-0 sigri á Empoli í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Frosinone sem er nýliði í deildinni var búið að tapa fjórum leikjum í röð fyrir jafnteflið gegn Juventus en stigið gegn ítölsku meisturunum virðist hafa vakið leikmenn liðsins til lífsins. Federico Dionisi og Danilo Soddimo sáu um markaskorunina í leiknum með tveimur mörkum um miðbik seinni hálfleiks en Riccardo Saponara, leikmaður Empoli, fékk rautt spjald, korteri fyrir leikslok. Það var heldur meiri dramatík í seinni leik kvöldsins, 2-1 sigri Atalanta á Sampdoria. Nikolas Moisander, leikmaður Sampdoria, varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net í upphafi leiksins. German Denis virtist hafa tryggt stigin þrjú með öðru marki Atalanta undir lok venjulegs leiktíma en Roberto Soriano náði að klóra í bakkann fyrir Sampdoria á 94. mínútu. Lengra komust gestirnir ekki og fögnuðu leikmenn Atalanta sigrinum en með sigrinum skutust þeir upp fyrir Sampdoria í 8. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.Úrslit kvöldsins: Frosinone 2-0 Empoli Atalanta 2-1 Sampdoria
Ítalski boltinn Mest lesið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti Leik lokið: Stjarnan-KR 94-86 | Stjörnumenn tóku aftur til sín toppsætið Körfubolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Fleiri fréttir Schick stjarnan í sterkum sigri Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Arnar fundar með KSÍ Freyr til Noregs í viðræður og Högmo tekinn við Molde Sjá meira