Ný Opel Astra í Frankfürt Finnur Thorlacius skrifar 11. september 2015 09:50 Ný Opel Astra.
Opel mun kynna nýja kynslóð Astra á bílasýningunni í Frankfürt í næstu viku. Opel hefur tekist að létta Astra um nær 200 kíló og ætlar að bjóða auk hefðbundins stallbaks bæði langbaksútfærslu og þriggja hurða sportútfærslu sem nefndur er GTC. Astra er 5 sentimetrum styttri en forverinn en Opel segir að engu að síður sé bíllinn rúmmeiri. Í Astra verða vélar allt frá 1,0 til 1,6 lítrum í sprengirými sem orka frá 95 til 200 hestöflum. Dísilvélin er 1,6 lítra og 136 hestafla og með 320 Nm tog. Allar vélarnar sem í boði verða í Astra eru nýjar, menga lítið og eyða litlu. Í boði verða bæði 5 og 6 gíra beinskiptingar og 5 og 6 gíra sjálfskiptingar. Opel Astra verður smíðaður bæði í Bretlandi og í Póllandi. Opel hefur smíðað Astra frá árinu 1991 og leysti hann þá af hólmi Opel Kadett. Opel Astra hefur frá upphafi verið lykilbíll fyrirtækisins ásamt Corsa og sala þeirra beggja skiptir lykilmáli í heildarsölunni og því ljóst að Opel hefur lagt sig mikið fram við þessa nýju kynslóð bílsins. „Fullyrða má að tilkoma nýs Opel Astra sé sannkallað risastökk fyrir bíl í millistærðarflokki með tilliti til afls, tæknibúnaðar og sportlegs útlits,“ segir Dr. Karl-Thomas Neumann, forstjóri Opel í Þýskalandi, þegar hann skýrði frá væntanlegri heimsfrumsýningu í Frankfurt, 15. september nk. Þar mun Neumann afhjúpa glænýjan Opel Astra, sem mun verða eitt aðaltrompið frá þýska bílarisanum á sýningunni. Meðal skemmtilegra nýjunga sem Opel mun kynna í bílnum eru nuddsæti, Opel On-Star upplýsingakerfi og ný háþróuð Led framljós. Í tilkynningu frá Bílabúð Benna segir að metsölubíllinn Opel Astra verði tákn nýrrar kynslóðar í flokki millistærðarbíla frá Opel, sem eigi jafnvel eftir að hrista duglega upp í lúxusbílamarkaðnum. Ný Astra verður fáanleg hjá Bílabúð Benna fljótlega eftir áramót.
Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent