Tæknirisinn Apple ætlar sér að þróa iPhone snjallsíma sem veit hvað notendur þurfa, áður en þeir vita það sjálfir. Til stendur að ráða minnst 86 manns til fyrirtækisins sem hafa unnið og eru kunnugir þeirri vinnu að auka lærdóm tölva. Þar að auki hafa þeir reynt að ráða fólk frá öðrum fyrirtækjum sem þegar vinna að gervigreind og því hvernig tæki læra um notendur sína.
Á síðust árum hefur fjöldi starfsmanna sem vinnur að þessum málum allt að þrefaldast hjá Apple.
Samkvæmt Reuters, gæti eigin stefna þó gert Apple erfitt fyrir. Fyrirtækið hefur gefið út að þeir vilji ekki sjá gögn og upplýsingar um notendur, sem þeir gætu notað til að auka skilning tækjanna á notendum.
Sérfræðingar eru ragir til að sækja um starf í gervigreindarteymi Apple, þar sem þeir fái meiri og betri upplýsingar til að vinna úr hjá öðrum fyrirtækjum eins og Google.
Apple mun halda stóra kynningu á morgun klukkan fimm að íslenskum tíma. Eins og alltaf hvílir mikil leynd yfir því hvaða vörur fyrirtækið mun kynna. Fjölmiðlar ytra gera hins vegar ráð fyrir því að Apple muni kynna nýjan iPhone, nýjan iPad og Apple Tv. Hægt verður að horfa á kynninguna á vef Apple.
Vilja að iPhone viti hvað þig vantar áður en þú veist það

Tengdar fréttir

Mun risa iPad stela sviðsljósinu?
Apple hefur brugðist við dræmri sölu iPad með því að þróa risa iPad.

Apple í samkeppni við Netflix
Apple er í viðræðum um mögulega framleiðslu á eigin sjónvarpsefni.

Siri bjargaði lífi ungs manns
Sam Ray sat fastur undir bíl sínum þegar talgervill Apple hringdi í neyðarlínuna.

Apple hélt velli á meðan markaðir hrundu
Tölvupóstur frá forstjóra fyrirtækisins snéri við miklu verðfalli við opnun markaða.

Gervigreind mannkyni til velfarnaðar
Íslenskir rannsakendur á gervigreind hafa myndað siðareglur og lofa að sinna ekki rannsóknum í hernaðarlegum tilgangi. Nýtt vígbúnaðarkapphlaup blasir við þar sem sjálfvirk hergögn og njósnatæki eru í lykilhlutverki.

Siri hjálpar Apple að kynna kynningu sína
Apple kynnir nýjar vörur sínar 9. september næstkomandi. Hægt er að biðja Siri um vísbendingar um kynninguna.