Þegar þeir tónleikar eru búnir er áætlunarflug norður hætt en hann getur ekki beðið til sunnudags og mun því flugvél bíða eftir honum á Reykjavíkurflugvelli og fljúga honum beint til Hríseyjar.
„Þetta er inn-út aðgerð, út úr flugvélinni, í skikkjuna, á svið, upp í vél aftur og beint í upptökur. Svo er bara að vona að Skálmöld ætli ekki að gera eitthvað á sama tíma. Og svo er ég alveg laflaus. Ef einhvern vantar meðlim í hljómsveit má hann eða hún bara hafa samband. Eða ekki,“ segir Bibbi og skellihlær.
Hljómsveitin Mannakjöt er skipuð kanónum úr íslensku tónlistarlífi og sendi hún frá sér sitt fyrsta lag fyrir skömmu en það heitir Þrumuský. Lagið er eftir Valgeir Magnússon, sem er betur þekktur sem Valli Sport, Pétur Guðmundsson og Örlyg Smára.
Heiðar Örn Kristjánsson úr Botnleðju, Óttarr Proppé úr Ham, Örlygur Smári, Sæbjörn Ragnarsson úr Skálmöld, Guðni Finnsson úr Ensími, Valli Sport og Aron Baron skipa sveitina.