Sport

Sjötti sigur Marquez í röð á Sachsenring brautinni í Þýskalandi

Marc Marquez á Honda fór með sigur af hólmi í Þýskalandi.
Marc Marquez á Honda fór með sigur af hólmi í Þýskalandi. vísir/getty
Marc Marquez, heimsmeistari síðustu tveggja ára, bar sigur úr býtum í MotoGP kappakstrinum sem fór fram á Sachsenring brautinni í Þýskalandi í dag. Þetta stjötti sigur hans í röð á Sachsenring.

Vonir Marquez um að verja titil sinn eru veikar en hann virðist þó ekki ætla að leggja árar í bát og stefnir á að veita þeim Valentino Rossi og Jorge Lorenzo hraða keppni á síðasti hluta tímabilsins.

"Mér leið vel frá byrjun og þegar ég náði góðri forystu reyndi ég að stjórna kappakstrinum. Ég er ánægður því við vorum fremstir alla helgina og það er langt síðan það gerðist," segir Marquez en hann var fremstur á ráspól eftir tímatökuna í gær.

Félagi hans í Honda-liðinu, Dani Pedroso, endaði í 2. sæti en goðsögnin Valentino Rossi á Yamaha í því þriðja. Rossi er efstur í heimsmeistarakeppni ökumanna með 179 stig, 13 stigum á undan félaga sínum á Yamaha, Jorge Lorenzo.

Marquez er í 4. sæti með 114 stig en keppnistímabilið er nú hálfnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×