Gómsæt saltfiskbaka að hætti Eyþórs úr þætti gærkvöldins á Stöð 2
Saltfisksbaka meðólífum, klettasalati og hvítlauks aioli
Bökudeigið
250 gr hveiti
2 teskeiðar sykur
½ tsk salt
½ tsk lyftiduft
110-130 ml nýmjólk
2 msk ólífuolía
Setjið öll þurrefnin saman í skál og blandið þeim vel saman með höndunum. Gerið holu í miðjuna á skálinni og bætið mjólkinni og ólífuolíunni út í. Setjið hendurnar í miðjuna og bætið smám saman hveitinu út í mjólkina. Þegar blandan er orðin að deigi takið þið deigið og setjið á eldhúsbekkinn ásamt smá hveiti og hnoðið deigið þar til það er orðið að þéttri og fallegri kúlu. Setjið smá olíu í botninn á skál og setjið deigið í skálina og látið það standa á heitum stað í ca 20 mín. Skiptið deiginu í 4 kúlur og fletjið það út. Hitið grillið með pizzasteininum inn í og setjið deigið á hann þegar grillið hefur náð hæsta hita.
Kryddjurtaolía
hvítlauksgeiri (fínt rifinn)
1 búnt ítölsk steinselja ( fínt skorin)
1 sítróna (bara börkurinn fínt rifinn)
50 ml ólífuolía
sjávarsalt
svartur pipar úr kvörn
Blandið öllu hráefninu saman og smakkið til með saltinu og piparnum.
Aioli
2 hvítlauksgeirar
2 eggjarauður
100 ml ólífuolía
1 tsk dijonsinnep
1 tsk sítrónusafi
1 10 stk saffran þræðir (leystir upp í smá hvítvíni eða vatni)
Sjávarsalt
Merjið hvítlaukinn í morteli og setjið svo í meðalstóra skál. Bætið sinnepinu út í og svo eggjarauðunum. Bætið svo smám saman olíunni út í eggin og pískið í á meðan. Þegar öll olían er komin út í og blandan er orðin þykk smakkið þið hana til með saltinu og sítrónusafanum.
Saltfiskurinn
300 gr saltfiskur (bein og roðlaus)
4 msk Gremolata
50 ml extra virgin ólífuolía
álpappír
Pakkið saltfisknum inn í álpappírinn með gremolatanu og ólífuolíunni. Setjið hann á heitt grillið og grillið í 8 mín. Hellið vökvanum af fisknum. Smyrjið gremolatanu yfir böku botninn, setjið klettasalatið yfir, raðið svo saltfisknum á bökuna og dreifið í lokin kirsuberjatómötunum og ólífunum yfir.
Meðlæti
1 poki klettaslat
80 gr góðar ólífur
1 box cherry tómatar grillaðir í 1 mín á hvorri hlið og velt upp úr hvítlauksolíu og kryddaðir með salti og pipar
Saltfisksbaka með ólífum, klettasalati og hvítlauks aioli

Tengdar fréttir

Fylltar kjúklingabringur í sætkartöfluhjúp með eplahrásalati
Eyþór Rúnarsson býr til dásamlega góðan kjúkling með bragðgóðu hrásalati, frábær sumarréttur.

Grilluð risahörpuskel með misodressingu að hætti Eyþórs
Eyþór Rúnarsson hefur svo sannarlega slegið í gegn með þáttum sínum Sumar- og grillréttir Eyþórs á Stöð 2. Hann er með girnilegar hugmyndir sem henta fullkomlega á sumarhlaðborðið nú eða bara á sumarborðið inni ef það rignir úti.

Ísbúa klemma með peru- og melónusalsa að hætti Eyþórs
Tilvalin eftirréttur með sumargrillinu að hætti Eyþórs Rúnarssonar úr þættinum sumar- og grillréttir Eyþórs á Stöð 2

Laxaborgari með grillaðri papriku, chilimajónesi, mangó og klettasalati
Laxaborgari með grillaðri papriku, chilimajónesi, mangó og klettasalati að hætti Eyþórs Rúnarssonar.