Veiðin í Norðurá hefur verið afskaplega góð og áin er sú fyrsta til að fara yfir 1000 laxa múrinn en það styttist þó óðum í að fleiri ár nái því marki. Blanda er komin yfir 1000 laxa líka en staðfestar tölur náðust ekki úr ánni í dag. Þverá og Kjarrá ná því líklega í næstu viku ef fram fer sem horfir og það efast síðan engin um að Rangárnar geri það ekki líka. Haffjarðará hefur skilað fínni veiði og er almennt góður gangur í henni. Sama má segja um nágranna hennar Langá en hún átti versta "fallið" í fyrra en er líka sú á sem nær bestri uppsveiflu á milli ára.
Miklar göngur hafa verið í Borgarfjarðarárnar þótt þær séu almennt seinna á ferðinni en það er þó mikill léttir hjá veiðimönnum þetta árið þegar smálaxinn mætir úr hafi, ekki bara vel haldinn heldur í góðu magni. Erfitt er að spá fyrir um framhaldið en þó sést það nokkuð vel að flestar árnar eigi eftir að eiga gott meðalár. Nokkrar árnar eru ekki ennþá komnar almennilega í gang en það verður að reikna með því að þær verði þá bara aðeins seinni til en vant er eins og með þær ár sem fóru seint af stað í sumar en blómstra nú sem aldrei fyrr.
Hér er listi yfir topp 10 árnar hjá Landssambandi Veiðifélaga. Listann í heild sinni má finna hér.
Norðurá 15. 7. 2015 1068 15 924
Blanda 15. 7. 2015 993 14 1931
Þverá + Kjarará 15. 7. 2015 735 14 1195
Miðfjarðará 15. 7. 2015 649 10 1694
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki. 15. 7. 2015 502 20 3063
Langá 15. 7. 2015 475 12 595
Haffjarðará 15. 7. 2015 407 6 821
Elliðaárnar. 15. 7. 2015 238 6 457
Laxá í Aðaldal 15. 7. 2015 229 18 849
Flókadalsá, Borgarf. 15. 7. 2015 215 3 343