Líkt og við mátti búast var ekki lengi að bíða viðbragða bílaframleiðenda við væntanlegri lagasetningu Evrópusambandsins um mengunarviðmið. Hugmyndir Evrópusambandsins voru að setja afar ströng viðmið, á bilinu 68 til 78 g af CO2 fyrir árið 2025.
Nú þegar eru í gildi lög sem setur bílaframleiðendum þau mörk að meðalmengun bíla þeirra sé ekki hærri en 95 g af CO2 árið 2021. Á síðasta ári var þetta viðmið 123 g. Samtök bílaframleiðenda, ACEA, segir að enginn möguleiki sé á því að bílaframleiðendur geti hlýtt svo miklum takmörkunum eftir 10 ár og því biðja þau um 5 ára lengri aðlögunartíma, þ.e. til ársins 2030.
Eftir að bílaframleiðendur hafa minnkað mengun bíla sinna um 34% á síðustu 20 árum, segjast þau nú að nálgast það sem mögulegt er í þessum fræðum og erfiðara og erfiðara sé að minnka enn meira mengun þeirra. Ennfremur segja bílaframleiðendur að hinar núgildandi ströngu mengunarviðmiðanir kosti þá um 1.000 evrur á hvern bíl og þetta komi mjög mikið niður á þeim sem framleiða ódýrari magnsölubíla og því gætu ákvarðanir frá Brussel riðið þeim að fullu.
Bílaframleiðendur vilja 5 ára frestun mengunarviðmiða
