Sumarsýning Mercedes-Benz Finnur Thorlacius skrifar 4. júní 2015 09:32 Mercedes Benz GL jeppinn.
Starfsfólk Bílaumboðsins Öskju er í sumarskapi þessa dagana. Mercedes-Benz er áberandi í tengslum við Smáþjóðaleikana sem nú standa sem hæst og næstkomandi laugardag verður Sumarsýning Mercedes-Benz haldin á Krókhálsinum kl. 12-16. ,,Sumarið er handan við hornið með öllum sínum ævintýrum. Þess vegna efnum við til sýningar með glæsilegum jeppaflota Mercedes-Benz. Að sjálfsögðu verða fólksbílar einnig í sýningarsalnum og allir bílarnir verða klárir til reynsluaksturs á laugardaginn,” segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz hjá Öskju. ,,Jeppalínan verður í forgrunni á sýningunni og þar ber hæst G-Class og GL-500. GLA sportjeppinn og CLA Shooting Brake verða svo einnig atkvæðamiklir. Við munum ennfremur taka forpantanir á hinum nýja GLE jeppa,” segir Ásgrímur. Hinn vinsæli M-Class mun nú heita GLE samkvæmt nýju nafnakerfi Mercedes-Benz og er væntanlegur í nýrri útfærslu undir því nafni í árslok. Hér um að ræða sérlega öflugan og vel búinn jeppa sem á eftir að vekja mikla eftirtekt. Þá verður 25% afsláttur af Mercedes-Benz aukahlutum meðan á sýningunni stendur á laugardag.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent