Bandaríski rapparinn Pell mætir í Höllina Bjarki Ármannsson skrifar 6. maí 2015 07:30 Pell þykir í meira lagi efnilegur.
Bandaríski rapparinn Pell, Friðrik Dór og Herra Hnetusmjör munu stíga á stokk á stórtónleikunum með hljómsveitinni Rae Sremmurd í Höllinni fimmtudaginn 27. ágúst. Þegar hefur verið greint frá því að Gísli Pálmi, Retro Stefson og Hermigervill munu hita upp fyrir sveitina. Pell fæddist í New Orleans og bjó þar til fimmtán ára aldurs, en þegar fellibylurinn Katarína lagði hverfið hans í rúst var öll fjölskylda hans flutt til Mississippi. Hann tók þó með sér tónlistarmenningu borgarinnar og hefur með henni skipað sér sess í rappsenunni vestanhafs. Fyrsta plata Pell, Floating While Dreaming, kom út í fyrra og hefur hlotið frábærar viðtökur.Friðrik Dór þarf vart að kynna, enda nýtur hann mikilla vinsælda meðal landsmanna á öllum aldri. Hann sló í gegn með frumrauninni Allt sem þú átt árið 2010 og árið 2012 kom svo út platan Vélrænn. Frá honum hafa jafnframt komið fjölmargar smáskífur og nýverið bræddi hann fjölmörg hjörtu þegar hann flutti lagið "Once Again" í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Herra Hnetusmjör gaf út sitt fyrsta lag aðeins 16 ára gamall en í raun byrjaði hann ferilinn 11 ára gamall, þegar hann rappaði með vini sínum undir naninu Herra Hnetusmjör og Sulta. Hann sló í gegn hjá yngri kynslóðinni í byrjun árs 2014 þegar lagið hans Elías gerði það gott á YouTube. Síðan þá hefur hann komið fram með helstu rapphundum landsins, þar á meðal Gísla Pálma, Gauta, Blaz og sveitinni Úlfur Úlfur, auk þess að spila á stórum viðburðum á borð við Airwaves, AK-Extreme og Hobsin. Þá hefur verið tilkynnt um alla tónlistarmennina sem koma fram á tónleikunum í ágúst. Miðasala hefst á miði.is þann 13. maí klukkan 10.00.
Tónlist Tengdar fréttir Hita upp fyrir Rae Sremmurd Retro Stefson og raftónlistarmaðurinn Hermigervill hita upp fyrir bandaríska hiphop-dúóið Rae Sremmurd. 5. maí 2015 08:30 Bræðurnir í Rae Sremmurd troða upp í Laugardalshöll Bræðurnir í rappsveitinni Rae Sremmurd njóta gífurlegra vinsælda í Bandaríkjunum. Plata sveitarinnar, SremmLife náði efsta sæti á tveimur Billboard-listum. Margar stórar íslenskar hljómsveitir koma fram sama kvöld í Laugardalshöllinni. 30. apríl 2015 07:30 Gísli Pálmi hitar upp fyrir Rae Sremmurd Það verður veisla í höllinni í sumar. 4. maí 2015 08:30 Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira
Hita upp fyrir Rae Sremmurd Retro Stefson og raftónlistarmaðurinn Hermigervill hita upp fyrir bandaríska hiphop-dúóið Rae Sremmurd. 5. maí 2015 08:30
Bræðurnir í Rae Sremmurd troða upp í Laugardalshöll Bræðurnir í rappsveitinni Rae Sremmurd njóta gífurlegra vinsælda í Bandaríkjunum. Plata sveitarinnar, SremmLife náði efsta sæti á tveimur Billboard-listum. Margar stórar íslenskar hljómsveitir koma fram sama kvöld í Laugardalshöllinni. 30. apríl 2015 07:30