Á hinni ströndinni í Kaliforníu, lang fjölmennasta fylki Bandaríkjanna, er það hinsvegar Honda Accord sem bílkaupendur eru sólgnastir í. Þó svo Honda Accord seljist best í Kaliforníu er Toyota Camry mest seldi fólksbíllinn í öllum Bandaríkjunum og sá söluhæsti í fylkjunum Alabama, Georgíu, S-Karolínu og N-Karolínu, en öll eru þetta suðlæg fylki á austurströndinni.
Tveir Subaru bílar algengastir í 4 fylkjum.
Tvær gerðir Subaru bíla eru vinsælastir allra bíla í fjórum fylkjum, Subaru Forester í Connecticut og Subaru Outback í Maine, Washington og Colorado. Í þessum fylkjum snjóar talsvert og í þeim býr fólk sem gjarnan hefur áhuga á útivist og hefur því þörf fyrir bíla sem ráða við erfiðari aðstæður.
Einn bíll enn sem ekki er pallbíll er vinsælastur í tveimur fylkjum, þ.e. Honda CR-V en mestar líkur er að finna hann af öllum bílum í fylkjunum New York og Rhode Island.
Pallbílar vinsælastir í flestum fylkjum.
Í öllum öðrum ríkjum Bandaríkjanna eru pallbílar vinsælastir og þá ekki bara Ford F-150. Í ríkjum Arizona, Nevada, Alaska, Montana og Oregon eru Ram pallbílar vinsælastir. Alaska er landstærsta fylki Bandaríkjanna þó fámennt sé og þar er vissulega þörf fyrir stóra, sterka og fjórhjóladrifna bíla sem tekið geta mikinn farangur eða hlass og því skiljanlegur áhugi á bílum eins og þessum.
Pallbíllinn Chevrolet Silverado er vinsælastur í miðríkjunum kringum stóru vötnin, þ.e. Illinois, Indiana, Iowa, Kentucky, Michigan, Missesota, Ohio, Delaware, New hampshire og V-Virginíu. Á Hawaii eyjunum er hinsvegar mest sala í Toyota Tacoma pallbílnum og í Vermont er vinsælasti bíllinn GMC Sierra, sem einnig er pallbíll.
Ford F-150 mest keyptur í 14 fylkjum.
Í öllum öðrum ríkjum Bandaríkjanna er Ford F-150 pallbíllinn mest seldi bílinn, þ.e. í fylkjunum Arkansas, Idaho, Kansas, Wyoming, Louisiana, Missouri, Mississippi, Nebraska, New Mexico, Norður- og Suður Dakota, Oklahoma, Pennsilvaníu, Tennessee og Utah. Það er ekki að spyrja að áhuga Bandaríkjamanna á pallbílum og nú seljast þeir eins og heitar lummur á tímum lækkandi bensínverðs.
