Heilsa

Litaðu stressið frá þér

sigga dögg skrifar
Vísir/Skjáskot
Það getur verið einstaklega streitulosandi að ganga aftur í barndóm, draga fram litina og lita!

Það er róandi fyrir hugann að einbeita sér að því að lita og því hafa vinsældir litabóka fyrir fullorðna vaxið í vinsældum.

Þó þú sért að lita þá þurfa það ekki að vera bílar og blóm heldur eru komnar litabækur fyrir fullorðna og þar eru myndirnar ekki af verri endanum en menn eins og Benedict Cumberbatch, Tom Hiddleston og Ryan Gosling prýða bækurnar svo þú getur notið þess að leyfa litnum að leika um síðurnar.

Vísir/Skjáskot
Nú eða þú getur litað einhyrninga sem eru leiðinlegir eða hlegið smá og litað myndir með fullorðinshúmor.

Þú getur litað einn eða með vinunum á góðu kveldi. 

Þá má lita þitt eigið listaverk, veldu fallega mynd, litaðu og rammaðu inn sem hugulsama heimagerða gjöf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×