Securitas fær tvo Mercedes-Benz lúxusbíla Finnur Thorlacius skrifar 9. apríl 2015 11:55 Mercedes Benz Sprinter bíll Securitas.
Securitas hefur fengið tvær íburðarmikla Mercedes-Benz bíla afhenta sem eru sérhannaðar fyrir lúxusakstursþjónustu fyrirtækisins, Luxury Transport Iceland. Um er að ræða mjög vel útbúna V-Class og Sprinter bíla með miklum þægindum og lúxus. ,,Við erum að búa til glæsilegan bílaflota til að sinna viðskiptavinum okkar sem vilja sérlega þægilegan ferðamáta í lúxusbílum á ferð sinni um Ísland. Við erum að bjóða upp á sérhæfða akstursþjónustu fyrir kröfuharða viðskiptavini og því mikilvægt að bílarnir og öll okkar þjónusta sé í hæsta gæðaflokki. Við erum m.a. með sérþjálfaða ökumenn sem sinna þessum verkefnum. Við erum afar ánægðir að fá þessa tvo Mercedes-Benz bíla í okkar þjónustu. Þeir eru hlaðnir lúxus í anda þýska lúxusbílaframleiðandans. Okkar markmið er að vera eingöngu með Mercedes-Benz bifreiðar í bílaflota fyrirtækisins,” segir Haukur Bent Sigmarsson, þjónustustjóri hjá Securitas. Sprinter bíllinn tekur alls níu farþega og er búinn sérhönnuðum VIP captain stólum. Fremstu tveimur aftursætunum er hægt að snúa aftur að borðinu milli sætaraðanna svo úr verður fundaraðstaða eða lúxus samkomustaður á hjólum. Bíllinn er með 32 tommu háskerpusjónvarpi, dökkar rúður og upplýstum inngangur. V-Class bíllinn er einnig búinn öllum helsta lúxusbúnaði. Boðið er m.a. upp á Wi-fi, þráðlaust net, um borð í bílunum. Þá mun annar sérútbúinn V-Class vera á leiðinni til Securitas á næstunni. Bílaumboðið Öskju, sem er umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi flytur bílana til landsins.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent