Vilja nýjan samning fyrir „Ísmanninn“ sem er betri en allir í Bolton Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. mars 2015 13:45
Eiður Smári Smári Guðjohnsen sneri aftur í lið Bolton um helgina eftir að sitja á bekknum gegn Blackburn helgina þar á undan. Eiður sneri aftur með stæl, en hann spilaði frábærlega og lagði upp seinna mark Bolton í 2-0 sigri á Millwall í ensku B-deildinni. Á stuðningsmannasíðu Bolton, Lion Of Vienna Suite, halda menn ekki vatni yfir frammistöðu Eiðs Smára í leiknum sem fær hæstu einkunn eða 9 fyrir sína líkt og markvörðurinn, Ben Amos. „Eiður Guðjohnsen sýndi óviðjafnaleg gæði í sigrinum á laugardaginn. Hann er í allt öðrum gæðaflokki en allir samherjar sínir. Stundum er gæðamunurinn svo mikill að aðrir leikmenn Bolton hafa ekki getu til að búast við sendingum hans,“ segir í frétt síðunnar þar sem allir leikmenn liðsins fá einkunn fyrir frammistöðu sína gegn Millwall. „Samningur Ísmannsins rennur út í sumar og við erum bilaðir ef við gefum honum ekki annað ár. Þvílíkur leikmaður,“ segir enn fremur um Eið Smára. Það er gott að vita til þess að Eiður Smári sé að spila svona vel því eins og Vísir greindi frá í morgun verður hann í leikmannahópi Íslands á móti Kasakstan í undankeppni EM 2016 í lok mánaðarins. Hér að ofan má sjá stoðsendingu Eiðs Smára í leiknum gegn Millwall.
EM 2016 í Frakklandi Enski boltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Sport Ingibjörg valin sú efnilegasta Íslenski boltinn Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Sjá meira