Nýr Kia Optima í New York Finnur Thorlacius skrifar 19. mars 2015 10:22 Nýr Kia Optima verður kynntur í New York í næsta mánuði.
Kia mun svipta hulunni af nýrri kynslóð Optima á bílasýningunni í New York í næsta mánuði. Búist er við því að ný Optima muni fá mikið af línuim að láni frá tilraunabílnum Sportspace sem sýndur var á bílasýningunni í Genf um daginn og vakti þar mikla hrifningu fyrir flott útlit. Optima kemur nú af fjórðu kynslóð, en hann verður byggður á sama undirvagni og síðasta kynslóð og fá að mestu sömu vélar. Hann verður í boði með hefðbundnar bensín- og dísilvélar auk Hybrid- og Plug-In-Hybrid útgáfa hans. Kia Optima er söluhæsti bíll Kia í Bandaríkjunum en það sama verður ekki sagt um Evrópu, en þar er hann sölulægsta bílgerð Kia. Kia seldi aðeins 3.406 Optima bíla í Evrópu í fyrra og jókst sala hans um 1% á milli ára. Allt aðra sögu er að segja frá Bandaríkjunum, en þar hefur hann selst í um 150.000 eintökum síðustu 3 ár og mest í fyrra, eða í 159.020 eintökum. Mest er því undir þar og hönnunin mun vaflaust taka mið af óskum Bandaríkjamanna. Það er því engin tilviljun að ný kynslóð bílsins sé kynnt vestanhafs. Ný Optima kemur á markað síðar á þessu ári. Það myndi ekki skaða Optima að fá lánaðar línur frá Sportspace tilraunabílnum.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent