Spáð þrefaldri eftirspurn ofurdýrra bíla Finnur Thorlacius skrifar 9. mars 2015 10:42 Aston Martin Vulkan á bílasýningunni í Genf.
Á bílasýningunni í Genf sem nú stendur yfir eru ofurdýrir bílar afar áberandi og er það til vitnis um þá miklu eftirspurn sem eftir slíkum bílum er. Er því spáð að hún muni aukast frá 123.000 bílum nú í 350.000 bíla við enda þessa áratugar. Þessi staðreyndaendurspeglar hve ofurríku fólki fer nú fjölgandi í heiminum og er ef til vill ein sterkasta birtingarmynd þess hve ójöfnuður fjár fer nú vaxandi í heiminum. Þegar átt er við ofurdýra bíla er verið að tala um bíla frá framleiðendum eins og Aston Martin, Bentley, Ferrari og Rolls Royce. Ekki er þarna gert ráð fyrir bílum frá þýsku lúxusbílaframleiðendunum Audi, BMW og Mercedes Benz og meira að segja eru bílar frá Porsche ekki inní þessum tölum, þrátt fyrir að margir þeirra kosti skildinginn. Eftirspurn eftir þessum rándýru bílum fer einna mest vaxandi í Kína, en einnig í Bandaríkjunum, en þar fer efnahagur mjög vaxandi þessa dagana og ofurríkum mjög fjölgandi. Það fólk sem fyllir 1% efnaðasta hluta mannkyns átti 48% af auð heimsins árið 2014 og því er spáð að það fólk muni eiga 50% af auði heimsins á næsta ári. Þeir ríkari verða því sífellt ríkari og því fólki er tamt að eignast flottustu og dýrustu bílana sem til sölu eru.
Mest lesið Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Reiði meðal lögreglumanna Innlent Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja Innlent Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Veður Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Erlent