Mercedes Benz S-Class Pullman 18. febrúar 2015 09:57 Mercedes Benz S-Class Pullman og bak við hann sést í gamlan lengdan Benz sem uppfyllti sömu þarfir fyrir þónokkrum árum.
Þá er loks komin forsetaútfærsla af Mercedes Benz S-Class sem fær Pullman nafnið í endann. Þessi bíll er lengd útgáfa af hefðbundnum S-Class bíl, en það er sko ekkert hefðbundið við þennan bíl. Hann hefur verið lengdur um 105 sentimetra og þakið hækkað svo enginn þurfi að taka ofan hattinn er hann sest uppí glæsivagninn. Vélarkostirnir eru 4,6 lítra V8 eða 6,0 lítra V12 vél með tveimur forþjöppum sem skilar 530 hestöflum. Sætin afturí geta hallað um 44 gráður og það er 18,5 tommu skjár í bílnum svo engum leyðist nú um borð. Í bílnum er Burgmeister hljóðkerfi með 3D surround hljóði. Skilrúm er á milli framsæta og aftursæta og má breyta því frá því að vera gegnsætt og ógegnsætt með einu takka. Mercedes Benz ætlar að sýna þennan bíl á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði og fer bílinn í sölu á næsta ári. Hann mun kosta um 75 milljónir króna í Þýskalandi.Ekki slorlegur að innan.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent