Hann er því 20 hestöflum öflugri en sá öflugusti áður, Mini Cooper S. Það sem vakti þó mesta athygli gesta á bílasýningunni varðandi þenna nýja Mini bíl er verð hans. Bíllinn mun kosta 31.450 dollara, eða 4,1 milljón króna. Það þótti mörgum forvitnilegt að bera saman aðra öfluga smábíla sem kosta mun minna.
Til dæmis má í Bandaríkjunum fá 197 hestafla Ford Fiesta á 20.770 dollara, 252 hestafla Ford Focus á 24.450 dollara, 258 hestafla Subaru WRX á 27.090 dollara, 210 hestafla Volkswagen Golf GTI á 25.215 dollara og 300 hestafla Golf R á 37.415 dollara. Allir þykja þeir betri kaup ef notuð er sú aðferð að deila verðinu í hestöflin.
Mini John Cooper er samt ári snöggur bíll og fer sprettinn í hundraðið á 5,9 sekúndum og í honum er mjög öflugt dempara- og bremsukerfi. Ennfremur er innrétting hans sérlega vönduð.
