Rúnturinn Hildur Sverrisdóttir skrifar 11. október 2014 09:00 Það marrar í sætinu og morgunsólin brýst í gegnum rúðurnar. Hann situr makindalega á meðan húsin í borginni líða hjá og félagarnir setjast inn einn af öðrum. Þeir heilsa honum, foringja sínum, og bíða að venju rólegir þar til hann hefur upp raust sína. Félagar, segir hann loks, við þurfum að lempa vandamálið sem við ræddum um í gær. Maðurinn mun verða erfiður viðureignar. Félagarnir stinga upp á að hann verði tekinn úr umferð. Kæru félagar, ég þarf ekki að taka alla úr umferð – bara óvini mína, segir hann og hlær. Munið líka gullnu regluna; haltu vinum þínum nálægt en óvinum þínum enn nær. Við byrjum því á að gera hann að vini okkar. En ef hann verður með vesen endar hann auðvitað sem fiskafóður. Þeir hlæja. Bílstjórinn fylgist með þeim í baksýnisspeglinum og hagræðir kaskeitinu. Lítur undan þegar hann mætir augnaráði þeirra og einbeitir sér að því að keyra. Við veginn stendur hestur. Þeir hnippa hver í annan stoltir. Muniði strákar? Í þá góðu daga var hægt að gera almennilega gjörninga til að sýna hverjir hafa tögl og hagldir í þessu samfélagi. Þó það hafi kannski verið óþarfi að útbía svona rúmfötin og elsku skepnan átti auðvitað ekkert skilið að vera afhausuð svona. Blessað hrossið. Blessaður búfénaðurinn! Þeir þagna og signa sig andartak. Nei, þeir myndu ekki þora að senda svona skilaboð í dag. Of áhættusamt í samfélagi sem verður afskiptasamara með degi hverjum. En minningin yljar og þeir glotta við tönn. Hoho. Leiðin liggur fram hjá svokallaðri sælkerabúð með alls konar útlenskum ostum sem þá hryllir við. Uppsprengda samkeppnishamlandi tollverðið er ekki nóg til að kæta þá. Svona verslun verður að stöðva. Það hefur verið erfitt að eiga við búðareigandann sem er ötull talsmaður heilbrigðrar samkeppni. En engar áhyggjur, félagar, segir hann, ég mun sjá um hann, ég mun gera honum tilboð sem hann getur ekki hafnað. Á Lækjartorgi skilur leiðir. Á sama tíma á morgun, piltar, segir hann, um leið og hann tekur skiptimiða og stígur út úr vagninum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hildur Sverrisdóttir Mest lesið Hættulegasta fitan er ekki sú sem sést utan á líkamanum Anna Lind Fells Skoðun Engar samningaviðræður lengur - einungis sótt um inngöngu. Þollý Rósmundsdóttir Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir Skoðun Rangt svar við raunverulegum vanda Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir Skoðun Áskorun til Þingvallanefndar Álfheiður Ingadóttir Skoðun
Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir Skoðun
Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir Skoðun
Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun