Fyrstu tónleikarnir af 22 fóru fram á þriðjudagskvöldið og hafa þeir fengið prýðisdóma í erlendum fjölmiðlum. „Ég hef aldrei æft svona mikið fyrir neitt enda er þetta rosalega stórt í sniðum, ætli það komi ekki um 60 manns að þessu sjói. Þetta er aðeins öðru vísi en sveitaböllin á Íslandi,“ segir Friðrik léttur í lundu.
Á fyrstu tónleikunum var fjöldi þekktra einstaklinga í salnum og ber þar helst að nefna okkar íslensku Björk, Lily Allen og þá er einnig talið að Madonna, David Bowie og Elton John hafi verið á tónleikunum. „Ég sá að á þriðja bekk fyrir framan mig sat Dave Gilmour úr Pink Floyd, það var skemmtilegt,“ bætir Friðrik við.

Mikil aðsókn er að tónleikunum, 110.000 miðar seldust á einungis fimmtán mínútum en þetta er í fyrsta sinn í 35 ár sem Bush kemur fram.
Í hljómsveitinni eru menn á heimsmælikvarða, en á meðal þeirra eru trommuleikarinn Omar Hakim, sem trommaði meðal annars vinsælasta lag síðasta árs, Get Lucky með Daft Punk, og David Rhodes sem hefur í fjölda ára verið gítarleikari Peters Gabriel, ásamt fleiri reynsluboltum.
Í fjölmiðlum erlendis er sagt að Bush hafi ekki leikið lög af fyrstu fjórum plötum sínum og þar að leiðandi ekki leikið nokkra af sínum helstu slögurum. „Þetta eru þrískiptir tónleikar með ákveðið konsept og hún valdi lög sem voru í samræmi við konseptið.“