Anderson og Todmobile semja nú tónlist fyrir væntanlega plötu Todmobile. „Samstarfið er í raun bara framhald af þessum tónleikum sem við spiluðum á saman í fyrra í Hörpu. Það gekk svo vel að Jon fékk mikinn áhuga á frekara samstarfi,“ bætir Eyþór Ingi við. Þorvaldur Bjarni og Jon Anderson sömdu saman lagið Wings of Heaven sem var frumflutt á tónleikunum.
Jon Anderson er eins og flestir vita þekktastur fyrir að hafa verið söngvari proggsveitarinnar Yes. Hann er þó ekki staddur hér á landi með sveitinni. „Samskiptin fara fram í gegnum netið og símann.“
Anderson syngur lag á væntanlegri plötu sveitarinnar og þá er hann einnig að semja enska texta. „Hann er meðal annars að semja enskan texta við lagið Hafmey, sem kom út á síðustu plötu, 7,“ bætir Eyþór Ingi við.
Hann segist sjálfur vera mikill aðdáandi Jons Anderson. „Þetta er náttúrulega bara frábært. Það var algjörlega mögnuð upplifun að stíga á stokk með kallinum á síðasta ári,“ segir Eyþór Ingi.
Tónleikar Todmobile og Jons Anderson voru teknir upp og nú á að gefa þá út á DVD í Bandaríkjunum. „Þetta er DVD-diskur sem inniheldur samstarf hans við sinfóníuhljómsveitir víðs vegar um heiminn og svo eru tónleikarnir okkar líka á disknum,“ bætir Eyþór Ingi við.