Sítrónan hefur ekki verið móðins í bakkelsi síðustu ár en nú er hennar tími kominn.
Hér eru nokkrar hugmyndir að sumarlegum sítrónuréttum.

Sítrónu- og hindberjastykki
Botn
8 muldar hafrakexkökur
3 msk. bráðið smjör
Hindberjasósa
1 bolli fersk hindber
2 msk. hunang
2 msk. vatn
Fylling
115 g mjúkur rjómaostur
¼ bolli grísk jógúrt
bolli „condensed milk“
1 egg
bolli „lemon curd“ (sítrónu-ystingur)
2 msk. hveiti
2 tsk. vanilludropar
tsk. salt
Hitið ofninn í 175°C og smyrjið 20 sinnum 20 sentimetra form. Myljið hafrakexið í matvinnsluvél og blandið því síðan saman við bráðið smjör. Setjið blönduna í botninn á forminu og bakið í um það bil átta til tíu mínútur. Látið kólna. Blandið hindberjum, hunangi og vatni saman í potti yfir lágum hita í um það bil fimm mínútur eða þangað til sósan er orðin þykk. Hrærið í blöndunni allan tímann. Setjið síðan blönduna í gegnum sigti til að losna við fræ og leyfið henni að kólna. Hrærið rjómaost, gríska jógúrt og „condensed milk“ saman í skál. Bætið eggi, lemon curd, hveiti, vanilludropum og salti saman við og hrærið allt saman í um þrjár mínútur. Hellið blöndunni yfir botninn. Setjið hindberjasósuna ofan á hér og þar og notið tannstöngul til að búa til rákir í kökuna. Bakið í tuttugu mínútur. Kælið kökuna við stofuhita og setjið í ísskáp í tvo tíma.
* Fengið hér

Sítrónu- og ólífuolíukaka
4 stór egg
1 bolli sykur
½ ólífuolía
2½ msk. sítrónusafi
1 bolli hveiti
½ tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
1 tsk. sítrónubörkur
¼ bolli flórsykur
Hitið ofninn í 175°C og smyrjið hringlaga form. Hrærið egg og sykur vel saman, í um það bil fimm mínútur. Hrærið hveiti, lyftiduft, salt og börk saman í annarri skál. Bætið olíu og sítrónusafa varlega saman við eggjablönduna. Bætið síðan hveitiblöndunni varlega saman við og passið að blanda ekki of lengi og vel saman. Bakið í 40 til 45 mínútur þangað til kakan hefur brúnast létt. Kælið kökuna og dustið síðan flórsykri yfir.
* Fengið hér

Sítrónuídýfa
230 g mjúkur rjómaostur
½ bolli grísk jógúrt
½ bolli lemon curd
1 tsk. vanilludropar
safi úr 1 sítrónu
Blandið öllum hráefnum vel saman og dýfið ljúffengum ávöxtum í.
*Fengið hér

Sítrónu- og hvítsúkkulaðismákökur
1¾ bolli hveiti
1 tsk. maizena
1 tsk. matarsódi
½ tsk. salt
½ bolli sykur
½ bolli púðursykur
Börkur af 1-2 sítrónum
170 g mjúkt smjör
1 stórt egg
170 g hvítir súkkulaðibitar
Blandið saman hveiti, maizena, matarsóda og salti. Hrærið saman sykur, púðursykur og sítrónubörk í annarri skál. Bætið smjörinu við og blandið saman í þrjár mínútur. Bætið egginu saman við og hrærið vel. Bætið hveitiblöndunni við sykurblönduna en passið að blanda ekki of vel saman. Hrærið súkkulaðibitunum saman við með sleif. Kælið deigið í um það bil klukkustund. Hitið ofninn í 180°C. Búið til kúlur úr deiginu og setjið á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Bakið í um það bil átta mínútur eða þangað til kökurnar brúnast aðeins en miðjan er mjúk.
Fengið hér