Hægelduð kalkúnabringa með salvíu- og steinseljuhjúp

Hægelduð kalkúnabringa með salvíu- og steinseljuhjúp
Salvíu og steinseljuhjúpur
8 stk salvíu blöð
1 bréf steinselja
1 hvítlauksrif (fínt rifið)
börkur af 1 sítrónu
2 tsk kókospálmasykur
1 tsk salt
hvítur pipar úr kvörn
35 gr parmesan
Setjið allt saman í í matvinnsluvél og vinnið saman í 90 sekúndur.
Kalkúnabringa
1 kg kalkúnabringa
500 ml rjómi
200 ml vatn
1 teningur sveppa
2 msk kalkúnakraftur eða kjúklingakraftur
2 stk laukar
2 stk hvítlauksgeirar
sósujafnari
½ safi úr 1 lime
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Setjið vatnið og rjómann í pott ásmt kjúklingakraftinum og sveppakraftinum og sjóðið upp á blöndunni. Skerið laukinn og hvítlaukinn gróft niður og setjið í eldfast mót. Setjið kalkúnabringuna ofan á laukinn og smyrjið hjúpnum yfir bringuna. Hellið rjómablöndunni í kringum kalkúnabringuna þar til að hún flýtur upp að hjúpnum og setjið inn í 160 gráðu heitan ofninn í 1 klst eða þar til bringan hefur náð 74 gráðum í kjarnhita. Takið bringuna úr forminu. Hellið vökvanum úr mótinu út í pott ásamt afgangnum af blöndunni sem að komst ekki með í mótið. Sjóðið upp á blöndunni í potti og maukið allt saman með töfrasprota.
Smakkið til með limesafanum, saltinu, piparnum og meiri kalkúnakrafti.
Bökuð sellerírót, rósakál og sætar kartöflur með stökku beikoni
½ Sellerírót
700 gr Sætar kartöflur
300 gr Rósakál
½ hvítlauksrif (fínt rifið)
ólífuolía
svartur pipar úr kvörn
sjávarsalt
1 bréf beikon
½ poki spínat
börkur af 1 lime eða sítrónu
Skrælið og skerið sellerírótina og sætu kartöflurnar í jafn stóra teninga og setjið í skál. Skerið rósakálið í helming og setjið í skálina með sellerírótinni og sætu kartöflunum. Kryddið vel með saltinu og piparnum og blandið hvítlauknum og ólífuolíu saman við. Hellið öllu saman á bökunarplötu og setjið inn í 160 gráðu heitan ofninn í 40 mín. Skerið beikonið niður í litla bita og setjið á heita pönnu og steikið þar til beikonið er orðið stökkt. Hellið beikoninu á disk með þreföldu lagi af eldhúsrúllu á. Takið grænmetið út úr ofninum og hellið í skál með spínatinu og beikoninu. Blandið öllu saman, smakkið til með salti og pipar eftir smekk gott er að rífa börk af 1 lime eða sítrónu yfir.
Tengdar fréttir

Laxatartar með estragonsósu
Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur, töfrar hérna fram frábæran laxatartar sem tilvalin er í jólaboðið.

Pekanhnetu- og kökudeigsískaka
Eyþór Rúnarsson gefur uppskrift af hinni fullkomnu ísköku

Svona gerirðu graflax
Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er með uppskrift af hinum fullkomna grafna laxi með graflaxsósu sem svíkur engan.

Humarsalat á smjördeigsbotni með grilluðum aspas og sítrónu
Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson bjó til þetta girnilega humarsalat í þættinum Eldhúsið hans Eyþórs í gærkvöldi. Rétturinn er tilvalinn um hátíðarnar.

Sveppahjúpað hátíðarhreindýr
Hreindýr er hátíðlegur matur. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er hér með frábæra uppskrift af hreindýralund sem hjúpuð er sveppum, kremaðri sveppasósu og graskers-,peru- og gráðaostasalati

Ómótstæðileg epla- og brómberjabaka
Eftirréttirnir eru rúsínan í pylsuendanum á jólaborðinu. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur töfraði fram þessa ómótstæðilegu epla- og brómberjaböku sem allir geta leikið eftir

Jólaöndin hans Eyþórs
Eyþór Rúnarsson, matreiðslumeistari og þáttastjórnandi Eldhússins hans Eyþórs á Stöð 2 bjó til ómótstæðilega heilsteikta önd með sveppa og trönuberjafyllingu ásamt ljúffengri sósu og kartöflum í hátíðarbúning.

Steiktar rjúpubringur á kremuðu grænkáli með bláberjum og gráðosti
Eyþór Rúnarsson sjónvarpskokkur færir áhorfendum rétta jólaandann heim í stofu með girnilegum hátíðaruppskriftum. Hér gefur hann lesendum Lífsins uppskrift að rjúpu sem tilvalin er sem forréttur á hátíðarhlaðborðið.