Í árekstarprófum EuroNCAP undanfarið hafa einir 7 bílar fengið 5 stjörnur. Það eru bílarnir Audi A3 e-tron, Porsche Macan, Land Rover Discovery Sport, Volkswagen Passat, Lexus NX, Subaru Outback og Jeep Renegade.
Kaupendur þessara bíla ættu að aka þeim áhyggjulausar en mörgum öðrum bílum sem kaupa má í stórvaxinni bílaflórunni. Áður höfðu á þessu ári nokkrir bílar skorað svo hátt í prófunum EuroNCAP, þ.e. bílarnir Kia Sorento, Ford Mondeo, Skoda Fabia og Nissan Pulsar.
Það er bílaframleiðendum mikið kappsmál að skora svo hátt í árekstrarprófunum EuroNCAP og ætti Volkswagen bílasamstæðan að una glöð við sitt með 4 nýja bíla sína á árinu, Volkswagen Passat, Porche Macan, Audi A3 e-tron og Skoda Fabia.
