Báturinn er 31 feta langur, smíðaður að mestu úr áli og með tvær bílvélar sem einnig má finna í Land Cruiser og Lexus GX bílum. Eru það 3,0 lítra dísilvélar með forþjöppum og eru þeim breytt til að henta í bátum, með sérstakri kælingu og eldsneytisstjórnun sem miða að því að minnka titring og hljóð.
Þessi nýi bátur ber nafnið Ponam-31 og kostar 275.000 dollara, eða um 33,3 milljónir króna. Hann tekur 12 manns og má bæði stýra í bátshúsinu sem og í opnu rými á toppi bátsins. Toyota hefur reyndar smíðað báta frá árinu 1997, hafði selt 600 báta árið 2008, en ekki hefur mikið farið fyrir fréttum af þeim. Toyota horfir aðallega til Bandaríkjanna við sölu á bátum sínum.

