133 milljóna tekjur af sölu hreindýraleyfa Aðalsteinn Kjartansson skrifar 7. október 2014 14:48 Vísir / Vilhelm
Heildartekjur af sölu hreindýraleyfa voru 133 milljónir króna á síðasta ári. Landeigendur og ábúendur fengu langstærstan hluta þeirra tekna í sinn vasa, eða 107 milljónir. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, við fyrirspurn Líneikar Önnu Sævarsdóttur, þingkonu Framsóknarflokksins. Inni í þessum tölum eru staðfestingargjald þegar veiðileyfi er ekki greitt að fullu en tekjur vegna skila á leyfum hækkuðu umtalsvert á milli 2012 og 2013. „Auk þess sem færst hefur í aukana að veiðimenn skili leyfum. Óvissa er um hvort þetta er tímabundið ástand vegna breyttra reglna,“ segir í svarinu. Líneik Anna spurði einnig um tekjur af sölu hreindýraafurða á síðasta ári en samkvæmt ráðherra voru engar tekjur af slíkri starfsemi. „Engar tekjur voru af sölu hreindýraafurða árið 2013 þar sem ekki var verkunarstöð með starfsleyfi frá Matvælastofnun,“ segir Sigurður Ingi í svari sínu. Viðtakendur arðs af hreindýraveiðum voru 962 og var meðaltalsupphæð greiðslan 111.000 krónur. Lægsta greiðslan var ekki nema 82 krónur en sú hæsta var rúmar 1,2 milljónir. Ekki er um að ræða einstaklinga í þessum tölum heldur greiðslur vegna stakra jarða.
Alþingi Mest lesið Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Viðskipti innlent Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Viðskipti innlent Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Hafa rúmir opnunartímar áhrif á verðlag? Neytendur „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Viðskipti innlent Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Ráðin markaðsstjóri Sensa Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Verðtryggð jafngreiðslulán aðeins í boði fyrir fyrstu kaupendur 4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Fegurð er glæpur kom út í mínus Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Heildareignir einstaklinga jukust um rúm fimm prósent á síðasta ári Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Sjá meira