Heilsa

Allt sem þú þarft að vita um hugleiðslu

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Mikil vitundarvakning hefur orðið á síðustu árum um mikilvægi þess að taka sér tíma til að slaka á og umræða um hugleiðslu og jóga hefur aukist verulega. Það er þó enn misskilningur meðal margra að hugleiðsla sé bara fyrir ákveðnar manngerðir og eigi ekkert erindi við aðra.

Charlie Knoles er hugleiðslukennari sem byrjaði að stunda hugleiðslu aðeins fjögurra ára gamall og hefur gert það alla tíð síðan með góðum árangri. Í þessu myndbandi sem bitrist á vefsíðunni mindbodygreen útskýrir Knoles hvernig hugleiðsla virkar og um hvað hún snýst. Hann leiðréttir algengan misskilning um hugleiðslu og telur að hún sé eitthvað sem allir séu færir um að stunda.


Tengdar fréttir

Handavinna - lykillinn að hamingju

Sérfræðingar telja að handavinna geti hjálpað þeim sem þjást af kvíða, þunglyndi eða langvarandi sársauka. Handavinna getur einnig hjálpað til við að losa um stress, auka gleði og hægir á hrörnun heilans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×