Í könnun á meðal 2.000 ökumanna, þar sem nákvæm skipting var á milli karla og kvenna, kemur í ljós hvaða stundir í umgengni sinni við bíla eru talin vandræðalegust og hver þeirra eru algengust.
Ekki kemur á óvart að algengast meðal þessara vandræðalegu tilvika er þegar ökumenn gleyma hvar þeir lögðu bíl sínum og þurftu að leita að honum. Það voru 52% ökumanna sem lent höfðu í því, 44% karla og 59% kvenna.
Næst algengast var að aka yfir kantsteina á bílastæðum og höfðu 43% ökumanna lent í því. Athygli vekur reyndar í niðurstöðum könnunarinnar að svo virðist sem konur viðurkenni frekar skissur sínar en karlar, hvort sem þær voru algengari hjá þeim eða ekki. Listinn allur lítur svona út:
1. Gleymdu hvar þeir lögðu bíl sínum (52%, eða 44% karla og 59% kvenna)
2. Óku yfir kantstein á bílastæði (43%, eða 35% karla og 51% kvenna)
3. Leystu lyklana inní bílnum (37%, eða 34% karla og 41% kvenna)
4. Óku á móti umferð á einstefnugötu (34%, eða 30% karla og 38% kvenna)
5. Óku af stað með eitthvað á þakinu (31%, eða 28% karla og 34% kvenna)
6. Reyndu að opna rangan bíl (29%, eða 24% karla og 34% kvenna)
7. Komust ekki út úr bílastæði (27%, eða 21% karla og 33% kvenna)
8. Misstu skyndibitamat eða pening út um gluggann við afgreiðslu (23%, eða 28% karla og 28% kvenna)
9. Sett þjófavörnina af stað og geta ekki slökkt (22%, eða 18% karla og 26% kvenna)
10. Misstu rukkunarmiða vegna vegagjalds út um gluggann (18%, eða 18% karla og 17% kvenna)
11. Hafa ekið í hringi á hringtorgi og ekki vitað hvar ætti að fara út (13%, eða 12% karla og 13% kvenna)
12. Stöðvuð af lögreglu og ekki með ökuskírteini (11%, eða 11% karla og 11% kvenna)
13. Ekið af stað með bensínslönguna í bensínopinu (11%, eða 14% karla og 7% kvenna)
14. Ekki tekist að láta fjartýringuna opna bílinn (9%, eða 10% karla og 8% kvenna)
15. Næstum ekið á gangandi manneskju (9%, eða 8% karla og 9% kvenna)
16. Gleymt farþega og snúið við (8%, eða 11% karla og 6% kvenna)
17. Farið inní bíl og uppgötvað að það var ekki þeirra bíll (8%, eða 7% karla og 8% kvenna)
17 vandræðalegustu stundir ökumanna
