Anna Tara ekki lengur á lausu Anna Tara skrifar 9. maí 2014 15:00 Vá hvað hún er falleg.
Anna Tara einn af þáttastjórnendum Kynlegra kvista, meðlimur Hljómsveitt og Reykjavíkurdætra er því miður ekki lengur á lausu. Já þetta mun hryggja marga en þið misstuð af tækifærinu. Engir fleiri skemmtistaðasleikir fyrir hana. Þó hún hafi óskað þess hið mesta að laðast einn daginn að stelpu er hún þó byrjuð með manni með typpi. Hann vill ekki vera nafngreindur en er eldhress, spólgraður sjómaður með hausinn á réttum stað... hjá henni. Hann heillaði hana strax upp úr skónum með ýmsum brögðum. Hann sendi henni til dæmis lista yfir alla þá karlmenn sem hann hafði sofið hjá vitandi að það myndi ganga í augun á henni. Hann uppfyllir allar hennar kröfur um útlit og hún segist ekkert þurfa að skammast sín mikið fyrir hann. Hann ber sig vel og er með fatasmekk sem stenst kröfur hennar um ,,kúlið” sem Anna Tara verður að passa upp á. Hún segir að þau „lúkki” vel saman. Spurð að því hvernig þau kynntust segir Anna Tara hann hafa sent sér vinabeiðni á facebook í kjölfar viðtalsins í Harmageddon varðandi lagið hennar Kynþokkafull með Hljómsveitt. Hún leit þó lengi ekki við honum enda úr nægu að velja eftir nýfundna frægð sína en þegar mesta athyglin hafði gengið yfir þáði hún vinabeiðni hans. Þau eru búin að hittast í tvær vikur og þrjá daga og eru ekkert annað en hamingjan uppmáluð. Þau hafa miklar væntingar um framtíð sína saman og hvernig hann geti stutt við bakið á henni. Hann mætir að sjálfsögðu með henni á tónleikana á Bar 11 í kvöld þar sem Hljómsveitt mun trylla lýðinn.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon Tónarúm - VÖK Harmageddon Ný klippa úr kvikmynd um Jimi Hendrix Harmageddon „Við þurfum að kenna krökkum að taka eiturlyf með öruggum hætti“ Harmageddon Nítján ára konungur gerir það gott Harmageddon Íslendingurinn sem er að slá í gegn í Dexter Harmageddon Ný lög á nýju ári Harmageddon Eins og djúsí Big Mac með stórum frönskum Harmageddon Sannleikurinn: Pizzukvöld yfir The Biggest Loser Harmageddon Trúleysi gerir tónlist góða Harmageddon
Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon
Sannleikurinn: "Ef hún hefði flúið með þrjá danska ketti til Íslands þá væri búið að finna þá“ Harmageddon