Á bak við tjöldin voru innanbúðarmenn þó ekki af baki dottnir og reyndist flokkurinn eiga nokkra sterka ása upp í erminni eins og nú hefur komið í ljós.
Á kjördæmisþingi Framsóknarmanna í Reykjavík í gær var nefnilega tilkynnt að flokknum hefði tekist að landa mjög öflugum liðsauka á listann. Þar var átt við engan annan en útvarpsmanninn Rikka G af hinni fanta sterku stöð FM 957.

Rikki hefur marga fjöruna sopið og komið víða við en frægðarsól hans skein líklega hæst þegar hann fékk sér húðflúr með lógói útvarpsstöðvarinnar X-ins 977 í byrjun árs 2010.
Þess má að lokum geta að þessi tenging Framsóknarflokksins við útvarpsstöðina FM 957 þarf ekki að koma nokkrum á óvart því áður hafa öflugir liðsmenn stöðvarinnar á borð við Heiðar Austmann og Egil Gillzenegger Einarsson báðir lýst yfir stuðningi sínum við flokkinn.
UPPFÆRT: Vegna breyttra aðstæðna í starfi hefur Ríkharð ákveðið að draga sig alfarið í hlé frá stjórnmálum. Framsókn hefur nú þegar orðið við ósk hans um að vera færður af lista flokksins og mun flokkurinn því ekki njóta góðs af hæfileikum Rikka G. að þessu sinni.
